Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Norðurþing

Málaflokkur

Gæludýr, Norðurþing

Undirritunardagur

15. desember 2025

Útgáfudagur

6. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1606/2025

15. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir leyfisgjald vegna hunda- og kattahalds, ásamt gjaldi vegna föngunar og vörslu óskilahunda og óskilakatta í Norðurþingi.

1. gr.

Hunda- og kattaeigendur í Norðurþingi skulu greiða leyfisgjald skv. 6. gr., 9. gr., 15. gr., 16. gr. og 17. gr. samþykktar nr. 160/2019 um hunda- og kattahald í Norðurþingi.

2. gr.

Af hundum skal innheimta hundaleyfisgjald skv. 6. gr. að upphæð kr. 14.468 á hvern hund í fyrsta sinn við skráningu og síðan árlega á gjalddaga sem sveitarfélagið ákveður.

Af köttum skal innheimta kattaleyfisgjald skv. 6. gr. að fjárhæð kr. 13.204 á hvern kött í fyrsta sinn við skráningu og síðan árlega á gjalddaga sem sveitarfélagið ákveður.

Innifalinn í leyfisgjaldi er eingöngu sá kostnaður sem bæjarfélagið verður fyrir vegna umfjöllunar, umsýslu, auglýsinga, skráningar, trygginga, eftirlits, ormahreinsunar og aflesara. Allan annan kostnað sem til fellur vegna hunds eða kattar, skal leyfishafi greiða.

Um vexti af vangreiddum gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari gilda almennar reglur.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

3. gr.

Eigendur hunda og katta eru ábyrgir fyrir öllum kostnaði sem hlýst af brotum gegn samþykkt um hunda- og kattahald í Norðurþingi, þ.m.t. óheimilli lausagöngu, handsömun, vörslu og skilum dýranna eða aflífun skv. 9. gr., 16. gr. og 17. gr. sömu samþykktar.

Við afhendingu handsamaðs hunds eða kattar skal leyfishafi greiða kr. 6.479 fyrir fyrsta skiptið sem hundur eða köttur er fangaður, í annað skiptið skal greiða kr. 12.959.

Fyrir óskráðan hund eða kött sem er handsamaður skal eigandi greiða við afhendingu kr 19.440.

Miðast greiðsla vegna föngunar við fjölda skipta sem hundur eða köttur er fangaður á almanaksári.

Ef til aflífunar hunds eða kattar kemur skal eigandi dýrs að auki greiða útlagðan aflífunarkostnað.

4. gr.

Ofangreind gjaldskrá er hér með staðfest af sveitarstjórn Norðurþings á grundvelli. 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. samþykkt nr. 160/2019 um hunda- og kattahald í Norðurþingi og öðlast gildi við birtingu í B-deild stjórnartíðinda. Við staðfestingu gjaldskrár þessarar fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1533/2024.

Húsavík, 15. desember 2025.

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 6. janúar 2026

Tengd mál