Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Grímsnes- og Grafningshreppur

Undirritunardagur

23. september 2026

Útgáfudagur

8. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1071/2026

23. september 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Lautarbrekka 7, L216993, í landi Syðri-Brúar, breytt byggingarmagn.

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Lautarbrekku 7, L216993. Breytingin felur í sér að hámarksstærð frístundahúss eykst úr 180 m² í 200 m² og að hámarksstærð aukahúsa/gestahúsa/geymslu eykst úr 40 m² í 50 m².

Samþykkt í sveitarstjórn 10. júlí 2026.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 23. september 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 8. október 2026

Tengd mál