Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Landskjörstjórn

Málaflokkur

Kosningar, Þjóðaratkvæðagreiðslur

Undirritunardagur

24. júlí 2026

Útgáfudagur

26. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 858/2026

24. júlí 2026

AUGLÝSING

um þjóðaratkvæðagreiðslu.

Með vísan til 26. gr. kosningalaga nr. 112/2021 tilkynnist að þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram 29. ágúst 2026.

Þann 28. maí 2026 ályktaði Alþingi að fram skyldi fara þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 um hvort Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju.

Atkvæðagreiðslan fer fram á grundvelli 2. mgr. 2. gr. kosningalaga. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er ráðgefandi, sbr. 3. mgr. 123. gr. sömu laga.

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni verður eftirfarandi spurning lögð fyrir kjósendur:

Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
❏  Já
❏  Nei

Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga þeir kjósendur sem hafa kosningarrétt til Alþingis og við forsetakjör, samkvæmt 3. gr. kosningalaga.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 27. júlí 2026.

Þetta auglýsist hér með samkvæmt 5. mgr. 26. gr. kosningalaga.

F.h. landskjörstjórnar, 24. júlí 2026.

Ástríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 26. júlí 2026

Tengd mál