Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Landbúnaður

Undirritunardagur

4. mars 2026

Útgáfudagur

17. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 253/2026

4. mars 2026

REGLUGERÐ

um flutning sauð- og geitfjár yfir varnarlínur.

1. gr. Gildissvið og markmið.

Reglugerð þessi fjallar um alla flutninga á sauð- og geitfé yfir varnarlínur. Markmið reglugerðarinnar er að koma í veg fyrir að alvarlegir smitsjúkdómar berist milli varnarhólfa við flutning fjár yfir varnarlínur.

2. gr. Skilgreiningar.

Í reglugerð þessari hafa eftirtalin orð og orðasambönd þá merkingu sem hér segir:

Varnarlínur: Mörk sóttvarnarsvæða, þar með taldar girðingarlínur sem skiptast í aðalvarnarlínur og aukavarnarlínur. Varnarlínur eru tilgreindar í auglýsingu um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma.

Áhættuhólf, genasamsæta, V og MV: Eins og það er skilgreint í reglugerð um riðuveiki í fé.

3. gr. Hömlur á flutningum sauðfjár og heimildir til útgáfu leyfa.

Óheimilt er að flytja sauð- og geitfé yfir varnarlínur án leyfis Matvælastofnunar. Óheimilt er að flytja sauðfé yfir varnarlínur sem ekki er arfgerðagreint eða arfgerð óþekkt, það sama gildir um fé sem ber VRQ genasamsætu. Matvælastofnun er heimilt að veita leyfi til flutnings yfir varnarlínur í tilgangi endurnýjunar bústofns eftir niðurskurð vegna sjúkdóma, búháttabreytinga eða til kynbóta að uppfylltum öllum skilyrðum í töluliðum 1, 2 og 3. Skilyrði 4. tl. skal einnig uppfyllt ef fé er flutt í áhættuhólf.

  1. Að varnarhólfið sem flutt er frá hafi jafna eða betri sjúkdómastöðu með tilliti til riðuveiki en það varnarhólf sem flutt er til, nema um sé að ræða sauðfé með V/V arfgerð.
  2. Að varnarhólfið sem flutt er frá hafi jafna eða betri sjúkdómastöðu undangengin 10 ár með tilliti til garnaveiki eða annarra tilkynningarskyldra smitsjúkdóma í fé en það varnarhólf sem flutt er til.
  3. Að sauðfé beri V eða MV genasamsætu.
  4. Að sauðfé sem flutt er í áhættuhólf beri V/x arfgerð, MV/MV arfgerð eða T137/x arfgerð.

Undanþágur frá 1. mgr. fara eftir 5. gr. og 7. gr.

4. gr. Leyfisskyldur flutningur fjár yfir varnarlínur.

Matvælastofnun er heimilt að gefa út söluleyfi á tiltekinn eiganda fjár og búsnúmer sem heimilar flutning fjár frá tilteknum bæ yfir varnarlínur að uppfylltum skilyrðum í samræmi við reglugerð þessa.

Þeir sem óska eftir að selja líflömb eða -kið til flutnings yfir varnarlínu skulu sækja um leyfi hjá Matvælastofnun eigi síðar en 1. júlí ár hvert. Við mat á umsóknum og ákvörðun um leyfisveitingu skal tekið tillit til eftirfarandi atriða:

  1. Eðlilegur fjöldi fullorðins fjár skal hafa verið sendur úr hjörðinni í sláturhús eða hausum skilað inn til sýnatöku vegna riðuveiki undanfarin sjö ár.
  2. Skráningar í hjarðbók (Fjárvís/Heiðrún) séu og hafi verið fullnægjandi í sjö undangengin ár er varðar eftirfarandi þætti:
    1. merkingar fjárins,
    2. flutninga fjár til og frá bænum,
    3. sjúkdóma og lyfjanotkun.
  3. Engin útistandandi alvarleg frávik séu skráð í eftirlitskerfi hjá Matvælastofnun.

Matvælastofnun skal afgreiða umsóknir eigi síðar en 15. september ár hvert, söluleyfi fyrir líflömb og -kið eru gefin út á nafn eiganda fjár og búsnúmer og eru ótímabundin svo lengi sem ákvæði þessarar greinar eru uppfyllt og sjúkdómastaða breytist ekki á viðkomandi bæ eða varnarhólfi. Í söluleyfi skal tilgreina að leyfið nái til líflamba sem bera tilteknar genasamsætur. Matvælastofnun heldur skrá yfir þá aðila sem hafa gild söluleyfi og birtir hana á vefsíðu sinni. Matvælastofnun er heimilt að framlengja umsókna- og afgreiðslufresti skv. 2. og 3. mgr.

Þeir sem óska eftir að flytja fullorðið fé yfir varnarlínur og falla ekki undir skilyrði 5. gr. skulu sækja um leyfi hjá Matvælastofnun. Matvælastofnun er heimilt að veita leyfi fyrir flutningi fullorðins fjár yfir varnarlínur sem ber einstaka erfðaeiginleika sem vert er að varðveita á landsvísu að fenginni umsögn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, fagráðs í sauðfjárrækt og erfðanefndar landbúnaðarins.

Þeir sem óska eftir að flytja líflömb inn í líflambasöluhólf sem skilgreind eru í 6. gr. skulu sækja um leyfi hjá Matvælastofnun. Matvælastofnun er aðeins heimilt að leyfa flutning á líflömbum sem bera V/V arfgerð og eingöngu á milli líflambasöluhólfa.

5. gr. Tilkynningarskyldur flutningur fjár yfir varnarlínur.

Þrátt fyrir ákvæði í 1. ml. 1. mgr. 3. gr. er heimilt að flytja fé yfir varnarlínur án sérstaks leyfis Matvælastofnunar að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:

  1. Að um sé að ræða flutning fjár sem farið hefur sjálft yfir varnarlínu til baka til síns heima beri það V/x eða MV/x arfgerðir (x er ekki VRQ):
    1. Skilyrði er að varnarhólfið sem sauðfé hefur farið yfir í sé með jafna eða betri sjúkdómastöðu með tilliti til riðuveiki en það varnarhólf sem hún á sinn uppruna í, nema um sé að ræða sauðfé með V/V arfgerð, þó ekki fé sem fellur undir ákvæði 6. gr.
    2. Skilyrði er að varnarhólfið sem sauðfé hefur farið í sé með jafna eða betri sjúkdómastöðu undangengin 10 ár með tilliti til garnaveiki.
  2. Að um sé að ræða fé með V/V arfgerð, þó ekki fé sem fellur undir ákvæði 6. gr.
  3. Að um sé að ræða flutning fjár á skráða kynbótastöð.

Móttakandi fjár sem flutt er yfir varnarlínu með heimild í þessari grein skal tilkynna Matvælastofnun gegnum þjónustugátt um flutninginn innan tveggja sólarhringa frá því flutningur fór fram.

6. gr. Flutningur líflamba inn á og milli líflambasöluhólfa.

Óheimilt er að flytja fé inn í líflambasöluhólf án leyfis Matvælastofnunar, en með leyfi fer samkvæmt 5. mgr. 4. gr. Líflambasöluhólf eru varnarhólf, eða tiltekin landsvæði innan þeirra, þar sem hverfandi líkur eru á að tilkynningarskyldir sjúkdómar í sauðfé leynist eða komi upp. Líflambasöluhólf eru með bestu sjúkdómastöðu sauðfjár hverju sinni, þau eru:

  1. Snæfellsneshólf, vestan línu úr Skógarnesi um Ljósufjöll í Álftafjörð.
  2. Vestfjarðahólf, sá hluti sem er austan Kollafjarðar og Ísafjarðarbotns.
  3. Norðurþings- og Múlahólf, sá hluti sem er austan Jökulsár á Fjöllum og norðan Brekknaheiðar.
  4. Öræfahólf, vestan Breiðamerkursands og austan Skeiðarársands.

7. gr. Leyfi til flutnings líflamba sem hvorki bera V né MV genasamsætu.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. getur Matvælastofnun í kynbótaskyni leyft flutning líflamba yfir varnarlínu sem hvorki bera V né MV genasamsætur að því tilskildu að þau séu flutt frá líflambasöluhólfum, skv. 6. gr., í önnur hólf en þó ekki í áhættuhólf. Matvælastofnun er einnig heimilt að veita leyfi fyrir flutningi líflamba yfir varnarlínur, einnig inn í áhættuhólf, sem hvorki bera V né MV genasamsætur en bera einstaka erfðaeiginleika sem vert er að varðveita á landsvísu að fenginni umsögn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, fagráðs í sauðfjárrækt og erfðanefndar landbúnaðarins. Líflömb sem leyft verður að flytja samkvæmt þessari grein mega ekki bera genasamsætuna VRQ.

8. gr. Leyfi til flutnings lífkiða.

Matvælastofnun er heimilt að leyfa flutning lífkiða yfir varnarlínur nema úr varnarhólfum þar sem bólusett er gegn garnaveiki til varnarhólfa þar sem ekki er bólusett við sjúkdómnum.

9. gr. Þrif á flutningstækjum og smitvarnir.

Flutningsaðili líflamba skal sjá til þess að flutningstæki séu þrifin og sótthreinsuð fyrir flutning. Eigandi eða umráðamaður fjárins sem afhent er til flutnings ber ábyrgð á smitvörnum á sínu búi, hann stýrir smitvörnum við afhendingu fjárins þar á meðal gangandi umferð milli flutningstækis og búsins. Honum ber að vísa flutningsaðila frá meti hann það svo að smitvörnum sé ábótavant.

10. gr. Skráningarskylda.

Í samræmi við reglugerð um merkingar búfjár skulu kaupendur og seljendur fjár sem flutt er yfir varnarlínur færa upplýsingar um flutningana í hjarðbók (Fjárvís/Heiðrúnu), það skal gert innan 7 daga frá því flutningur fór fram.

11. gr. Kaup á líflömbum og lífkiðum.

Kaup og/eða flutningar á líflömbum og -kiðum yfir varnarlínur eru aðeins heimil frá bæjum sem hafa gilt söluleyfi samkvæmt 4. gr.

Kaup líflamba og -kiða sem ætluð eru til flutnings yfir varnarlínur eru ekki háð leyfi Matvælastofnunar, enda kannar kaupandi hvort gilt söluleyfi liggi fyrir samkvæmt 4. gr.

12. gr. Opinbert eftirlit.

Matvælastofnun hefur eftirlit með að ákvæðum þessarar reglugerðar sé fylgt.

13. gr. Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

14. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi og jafnframt er felld úr gildi reglugerð um flutning líflamba milli landsvæða, nr. 550/2008.

Ákvæði til bráðabirgða.

Líflambasöluleyfi sem útgefin voru af Matvælastofnun skv. reglugerð um flutning líflamba milli landsvæða, nr. 550/2008, halda gildi sínu, enda uppfylli þau skilyrði reglugerðar þessarar.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 4. mars 2026.

Hanna Katrín Friðriksson.

Elísabet Anna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 17. mars 2026

Tengd mál