Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
1. nóvember 2024
Útgáfudagur
7. nóvember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 55/2024
1. nóvember 2024
AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 1236/2024 um (38.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2677 frá 8. október 2024 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins, Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru nr. 22/1994 og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Matvælaráðuneytinu, 1. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
Svava Pétursdóttir.
C deild - Útgáfud.: 7. nóvember 2024