Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur, Byggðamál
Undirritunardagur
8. apríl 2026
Útgáfudagur
9. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 340/2026
8. apríl 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 136/2026, um strandveiðar.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna „frá 1. mars og fyrir 15. apríl“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: frá og með 1. mars og til og með 15. apríl
- Í stað orðanna „8. og 9. mgr.“ í 1. málsl. 7. mgr. kemur: 8., 9. og 10. mgr.
- Í stað orðsins „Leyfishafi“ í 3. málsl. 9. mgr. kemur: Sá eigandi strandveiðiskips sem á meira en 50% eignarhlut í skipi
- Í stað orðsins „leyfishafi“ í 10. mgr. kemur: sá eigandi strandveiðiskips sem á meira en 50% eignarhlut í skipi
2. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 3. gr. er Fiskistofu heimilt á strandveiðivertíðinni 2026 að synja ekki umsókn um strandveiðileyfi þótt skilyrði um haffærisskírteini séu ekki uppfyllt við umsókn skv. 1. mgr. 3. gr. Skal leyfi hins vegar ekki veitt fyrr en skilyrði um haffærisskírteini eru uppfyllt. Önnur skilyrði reglugerðarinnar skulu að öðru leyti vera uppfyllt.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a og 2. mgr. 17. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 8. apríl 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
B deild — Útgáfudagur: 9. apríl 2026