Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hvalfjarðarsveit
Undirritunardagur
7. október 2026
Útgáfudagur
21. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1113/2026
7. október 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna Katanesvegar, Grundartanga, iðnaðarsvæðis (I11).
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 7. október 2026 breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 4. september 2026.
Í breytingunni felst skilgreining á um 18,6 ha iðnaðarsvæði, I11, við Katanesveg á Grundartanga fyrir landeldi á laxfiski. Jafnframt minnkar athafnasvæði AT5 úr 49 ha í 30 ha. Breytingin nær einnig til ákvæða iðnaðarsvæðis I11, athafnasvæðis AT5, opins svæðis OP5, hafnarsvæðis H4 og strandsvæðis ST4 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar, lagna og fráveitu sem tengist starfseminni.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 7. október 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 21. október 2026