Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

15. maí 2026

Útgáfudagur

29. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 597/2026

15. maí 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1144 frá 3. júní 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtalin gerð:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1144 frá 3. júní 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 217/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75 frá 27. nóvember 2025, bls. 142-162.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 228. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 15. maí 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi