Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Húnavatnssýslur
Undirritunardagur
7. apríl 2026
Útgáfudagur
21. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 382/2026
7. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi fyrrum Blönduósbæjar vegna verslunar- og þjónustulóðar við Svínvetningabraut, Húnabyggð.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun staðfesti 7. apríl 2026 breytingu á aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. mars 2026.
Í breytingunni felst skilgreining á tæplega 8 ha verslunar- og þjónustusvæði VÞ12 við Svínvetningabraut á Blönduósi vegna áforma um uppbyggingu fjölorkustöðvar. Opið svæði O4 er fellt út og landbúnaðarsvæði stækkar lítillega.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 7. apríl 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 21. apríl 2026