Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Atvinnuréttindi, Útlendingar

Undirritunardagur

30. júní 2026

Útgáfudagur

7. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 79/2026

30. júní 2026

LÖG

um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLIBreyting á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002.

1. gr.

  1. Í stað orðsins „Vinnumálastofnun“ í 2. mgr. 4. gr., 2. málsl. c-liðar 1. mgr. 7. gr., b-lið og 2. málsl. d-liðar 1. mgr., 1. og 2. málsl. 2. mgr., 3. og 4. málsl. 3. mgr., 4. mgr., 1., 2. og 3. málsl. 5. mgr. og 6. málsl. 6. mgr. 8. gr., 5. málsl. 1. mgr., 4. málsl. 3. mgr., 2. málsl. 5. mgr. og 1. málsl. 7. mgr. 19. gr., 21. gr., 1. og 2. málsl. 24. gr., 2. og 3. mgr., 1. og 2. málsl. 4. mgr., tvívegis í 1. málsl. og 2. málsl. 5. mgr. 25. gr. laganna kemur: Útlendingastofnun.
  2. Í stað orðsins „Vinnumálastofnunar“ í 1. málsl. 1. mgr. 19. gr., 1. málsl. 2. mgr. 23. gr., 1. og 2. málsl. 6. mgr. 25. gr. og 1. málsl. 1. mgr., 1. málsl. 2. og 3. mgr. 34. gr. laganna kemur: Útlendingastofnunar.

2. gr.

Orðin „4. og“ í 2. og 4. mgr. 6. gr. laganna falla brott.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 7. gr. laganna:

  1. Við 2. málsl. a-liðar bætist: eða stofnunin hafi metið það svo að slík leit sé bersýnilega óþörf með hliðsjón af framboði og stöðu á vinnumarkaði.
  2. B- og d-liður falla brott.
  3. Við c-lið bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Útlendingastofnun er heimilt að leita umsagnar stéttarfélags eða landssambands launafólks í hlutaðeigandi starfsgrein um laun og önnur starfskjör útlendings telji stofnunin þörf á.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:

  1. Í stað tilvísunarinnar „a–e-liða“ í a-lið 1. mgr. kemur: a-, c- og e-liðar.
  2. Í stað tilvísunarinnar „a-, d- og e-liðar“ í 6. mgr. kemur: a- og e-liðar.

5. gr.

Málsliðurinn „Við framlengingu þarf skilyrði d-liðar 1. mgr. 7. gr. ekki að vera uppfyllt“ í 3. mgr. 9. gr., 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 12. gr. laganna fellur brott.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:

  1. Í stað „b-, c- og d-liðar“ í b-lið 1. mgr. kemur: c-liðar.
  2. Málsliðurinn „Við framlengingu þurfa skilyrði d-liðar 1. mgr. 7. gr., sbr. b-lið 1. mgr., ekki að vera uppfyllt“ í 2. mgr. fellur brott.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:

  1. Í stað „b–d-liðar“ í 1. mgr. kemur: c-liðar.
  2. Í stað „a-, b- og e-liðar“ í 2. mgr. kemur: a- og e-liðar.

8. gr.

13. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Atvinnuþátttaka námsmanna.

Handhafa dvalarleyfis á grundvelli náms er heimilt að starfa hér á landi án atvinnuleyfis sem launþegi í allt að 60% starfshlutfalli meðan á námi stendur.

Þrátt fyrir 1. mgr. er útlendingi heimilt að starfa sem launþegi í hærra starfshlutfalli en 60% þegar eitt af eftirfarandi skilyrðum er uppfyllt:

  1. atvinnuþátttaka útlendings fer fram á milli námsanna samkvæmt námskrá viðkomandi skóla,
  2. útlendingi hefur áður verið veitt endurnýjað dvalarleyfi hér á landi vegna náms samkvæmt lögum um útlendinga þar sem hann hefur lokið háskólanámi hérlendis og dvelur hér í atvinnuleit á grundvelli sérþekkingar sinnar,
  3. um er að ræða formlegt starfsnám sem fram fer á vinnustað. Þegar námsmaður fær dvalarleyfi á grundvelli starfsnáms skal atvinnuþátttaka hans takmarkast við það starfsnám.

Útlendingur skal, samhliða endurnýjun dvalarleyfis, standa skil á upplýsingum um atvinnuþátttöku sína til staðfestingar á að hann hafi ekki starfað umfram heimilað starfshlutfall. Þá er Útlendingastofnun heimilt að óska eftir upplýsingum frá útlendingi um atvinnuþátttöku hans á gildistíma dvalarleyfisins. Útlendingastofnun er heimilt að afla nauðsynlegra upplýsinga frá öðrum opinberum aðilum og vinnuveitanda útlendings til að staðreyna atvinnuþátttöku hans.

Samræmist atvinnuþátttaka útlendings ekki skilyrðum ákvæðis þessa er Útlendingastofnun heimilt að endurskoða eða fella niður heimild hans til atvinnuþátttöku.

Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari skilyrði fyrir atvinnuþátttöku námsmanna samkvæmt ákvæði þessu, svo sem um gagnaskil vegna starfa útlendings, viðurlög við brotum og skilyrði starfsnáms.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 18. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „tímabundin atvinnuleyfi“ í 1. málsl. kemur: heimild til starfa án atvinnuleyfis.
  2. Í stað orðanna „Tímabundið atvinnuleyfi“ í 2. málsl. kemur: Tímabundin heimild til atvinnuþátttöku.
  3. Í stað orðanna „slík atvinnuleyfi“ í 4. málsl. kemur: slíkt leyfi.

10. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:

  1. Orðin „sem áframsendir hana svo fljótt sem unnt er til Vinnumálastofnunar“ í 3. málsl. 1. mgr. og 2. málsl. 3. mgr. falla brott.
  2. 2., 4. og 8. mgr. falla brott.
  3. Orðin „eigi síðar en fjórum vikum“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.

11. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. laganna:

  1. Orðin „sbr. þó 2. mgr. 18. gr.“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
  2. Í stað orðsins „Vinnumálastofnun“ í 2. mgr. kemur: Útlendingastofnun, Vinnueftirlit ríkisins.
  3. Á eftir orðinu „Vinnumálastofnunar“ í 3. mgr. kemur: Vinnueftirlits ríkisins.

12. gr.

Í stað orðanna „Vinnumálastofnun þær upplýsingar sem stofnunin kann“ í 2. mgr. 22. gr. laganna kemur: Útlendingastofnun, Vinnueftirliti ríkisins eða lögreglu þær upplýsingar sem fyrrgreindir aðilar kunna.

13. gr.

Í stað orðanna „Vinnumálastofnun þær upplýsingar sem stofnunin kann“ í 3. mgr. 23. gr. laganna kemur: Útlendingastofnun, Vinnueftirliti ríkisins og lögreglu þær upplýsingar sem fyrrgreindir aðilar kunna.

14. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „Vinnumálastofnun“ í 1. mgr. kemur: Útlendingastofnun, Vinnueftirliti ríkisins.
  2. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

    Útlendingastofnun skal reglulega afhenda viðeigandi stéttarfélögum upplýsingar um útgefin atvinnuleyfi samkvæmt lögum þessum sem eru nauðsynlegar í tengslum við eftirlit samkvæmt lögum um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Sömu upplýsingar er heimilt að veita samtökum aðila vinnumarkaðarins óski þeir aðilar eftir því. Með nauðsynlegum upplýsingum er m.a. átt við kennitölu, nafn og starfsheiti launamanns auk kennitölu atvinnurekanda og heiti viðeigandi kjarasamnings sem um starfið gildir samkvæmt ráðningarsamningi.

    Ráðherra er heimilt að kveða í reglugerð nánar á um skyldu Útlendingastofnunar til reglubundinnar afhendingar upplýsinga um útgefin atvinnuleyfi, sbr. 7. mgr., m.a. um hvað telst til nauðsynlegra upplýsinga, tíðni afhendingar gagna sem og um örugga afhendingu þeirra.

15. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 26. gr. laganna:

  1. Í stað orðanna „og Vinnumálastofnun“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Útlendingastofnun og Vinnueftirlit ríkisins.
  2. Í stað orðanna „lögreglu og Vinnumálastofnun“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: framangreindum aðilum.
  3. Í stað orðsins „Vinnumálastofnun“ í 1. málsl. 2. mgr. og 4. mgr. kemur: Vinnueftirliti ríkisins.
  4. Í stað orðsins „Vinnumálastofnun“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: Vinnueftirlit ríkisins.
  5. Í stað orðsins „Vinnumálastofnunar“ í 3. mgr. kemur: Vinnueftirlits ríkisins.
  6. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er eftirlitsfulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins heimilt að krefja starfsmann um skilríki sem staðfesta heimild hans til atvinnuþátttöku í tengslum við eftirlit á grundvelli laga um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
  7. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Eftirlit.

16. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 30. gr. laganna:

  1. 1. mgr. fellur brott.
  2. Orðin „í samráði við Vinnumálastofnun“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.

17. gr.

32., 33. og 35. gr. laganna falla brott.

18. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „ráðuneytisins“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: kærunefndar útlendingamála.
  2. Í stað orðanna „fjórar vikur“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 15 dagar.
  3. Í stað orðsins „ráðuneytinu“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: kærunefndinni.
  4. 4. mgr. fellur brott.

II. KAFLIBreyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016.

19. gr.

Á eftir orðinu „Vinnumálastofnun“ í 2. málsl. 2. mgr. 17. gr. laganna kemur: Vinnueftirliti ríkisins, innlendum menntastofnunum.

20. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 52. gr. laganna:

  1. Í stað 1. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Útlendingastofnun tekur ákvörðun um veitingu dvalarleyfis á grundvelli laga þessara en um veitingu atvinnuleyfis á grundvelli laga um atvinnuréttindi útlendinga. Heimilt er að taka ákvörðun um dvalar- og atvinnuleyfi samtímis.
  2. 2. mgr. orðast svo:
    Umsókn skulu fylgja öll þau gögn og vottorð sem Útlendingastofnun gerir kröfu um til staðfestingar á að umsækjandi uppfylli skilyrði sem lög, reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um.

21. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 65. gr. laganna:

  1. Eftirfarandi breytingar verða á 6. mgr.:
    1. Orðin „þar sem þess er krafist“ í 2. málsl. falla brott.
    2. Orðið „fyrstu“ í 3. málsl. fellur brott.
  2. Eftirfarandi breytingar verða á 8. mgr.:
    1. Í stað orðanna „þrjú ár“ kemur: 18 mánuði.
    2. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Skilyrði fyrir veitingu slíks dvalarleyfis er að útlendingur hafi lokið bakkalárgráðu á grunnstigi, prófgráðu á meistarastigi eða prófgráðu á doktorsstigi frá innlendum háskóla.

22. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 69. gr. laganna:

  1. Talan „65.“ í 1. málsl. fellur brott.
  2. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sama gildir um maka, sambúðarmaka og börn þeirra sem stunda fullt nám á háskólastigi til bakkalárgráðu á grunnstigi, prófgráðu á meistarastigi eða prófgráðu á doktorsstigi á grundvelli 65. gr.

23. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Við gildistöku laga þessara tekur Útlendingastofnun við skyldum Vinnumálastofnunar um umsýslu og útgáfu tímabundinna atvinnuleyfa.

Óafgreiddar umsóknir um tímabundin atvinnuleyfi sem borist hafa fyrir gildistöku laga þessara skulu afgreiddar af Útlendingastofnun.

Kærur sem borist hafa ráðuneyti félags- og húsnæðismála vegna ákvarðana um tímabundin atvinnuleyfi fyrir gildistöku laga þessara skulu afgreiddar af kærunefnd útlendingamála.

24. gr.

Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006: Á eftir orðinu „Fangelsismálastofnun“ í 4. mgr. 9. gr. laganna kemur: Útlendingastofnun.

Gjört í Reykjavík, 30. júní 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

A deild — Útgáfudagur: 7. júlí 2026

Tengd mál