Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Akraneskaupstaður
Málaflokkur
Akranes, Gæludýr
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
30. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1503/2025
15. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Akraneskaupstað.
1. gr.
Af hundum á Akranesi skal bæjarsjóður innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem er ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald á Akranesi, nr. 782/2010, sbr. 11. gr. hennar.
2. gr.
Við umsókn um skráningu hunds skal innheimta gjald sem hér segir:
| a) | Skráning | Kr. 21.650 |
| b) | Skráning eftir útrunninn frest, sbr. 1. mgr. og 2. mgr. 3. gr. samþykktar um hundahald nr. 782/2010. |
Kr. 26.910 |
3. gr.
Af skráðum hundum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:
| a) | Fyrir hvern hund | Kr. 26.910 |
| b) | Fyrir hvern hund þegar eigandi hefur lokið námskeiði, sbr. 7. gr. þessarar gjaldskrár. |
Kr. 13.450 |
4. gr.
Greiðsla fyrir ábyrgðartryggingu er innifalin í gjaldi samkvæmt a-lið 2. gr. og 3. gr. svo og árleg ormahreinsun.
5. gr.
Við afhendingu handsamaðs hunds skal innheimta handsömunargjald sem hér segir:
| a) | Fyrsta afhending hunds | Kr. 26.910 |
| b) | Önnur afhending hunds, ef hún er innan tveggja mánaða | Kr. 35.900 |
| c) | Þriðja afhending hunds, ef hún er innan tveggja mánaða | Kr. 44.950 |
Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.
6. gr.
Gjalddagi skv. 3. gr. er 1. febrúar og eindagi er 1. mars. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.
Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Við afskráningu hunds ber sveitarfélaginu að endurgreiða árlegt gjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu.
7. gr.
Hafi leyfishafi lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi, viðurkenndu af skipulags- og umhverfisráði Akraneskaupstaðar lækka gjöld skv. 3. gr. gjaldskrár þessarar um 50%. Eigendur blindra-, leitar- og björgunarhunda eiga rétt á niðurfellingu gjalda samkvæmt 2. og 3. gr., enda leggi þeir fram skilríki um að hundarnir séu notaðir í þeim tilgangi.
8. gr.
Ofangreind gjaldskrá bæjarstjórnar Akraness staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, samanber samþykkt um hundahald á Akranesi nr. 782/2010, til að öðlast þegar gildi.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir hundahald í Akraneskaupstað nr. 1656/2024.
Gjaldskráin var samþykkt af bæjarstjórn Akraness 9. desember 2025.
Akranesi, 15. desember 2025.
Haraldur Benediktsson bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025