Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
10. júní 2014
Útgáfudagur
26. júní 2014
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 605/2014
10. júní 2014
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Aftast í 3. gr. bætist við ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir ákvæði stafliða e og f kýs stúdentaráð Háskóla Íslands tvo aðalmenn og tvo varamenn til setu í háskólaráði til tveggja ára fyrir tímabilið 1. júlí 2014 til 30. júní 2016, samkvæmt reglum sem stúdentaráð hefur sett þar um.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 130. gr.:
-
1. mgr. orðast svo:
- Til BS-prófs í rafmagns- og tölvuverkfræði.
- Til BS-prófs í mekatróník hátæknifræði og orku- og umhverfistæknifræði og fer kennslan fram á vettvangi Keilis.
- Til meistaraprófs, MS-prófs, í rafmagns- og tölvuverkfræði, rafmagnsverkfræði og tölvuverkfræði.
- Til doktorsprófs, Ph.D.-prófs, í rafmagns- og tölvuverkfræði, rafmagnsverkfræði og tölvuverkfræði.
- 5. mgr. orðast svo: Til BS-prófs í rafmagns- og tölvuverkfræði er krafist minnst 180 eininga.
- Á eftir 5. mgr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi: Til BS-prófs í mekatróník hátæknifræði og orku- og umhverfistæknifræði er krafist minnst 220 eininga. Nám í tæknifræðigreinum er aðgreint frá námi í rafmagns- og tölvuverkfræði og fer fram á öðrum vettvangi.
- Núverandi 6. mgr. orðast svo: Til MS-prófs er krafist 120 eininga náms að loknu BS-prófi í rafmagns- og tölvuverkfræði frá deildinni.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 131. gr.:
- 1. málsliður 1. mgr. orðast svo: Kennslu til BS-prófs í rafmagns- og tölvuverkfræði skal haga þannig að stúdent geti lokið 180 eininga námi á þremur árum.
- Á eftir 2. málslið 1. mgr. bætast við tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Kennslu til BS-prófs í mekatróník hátæknifræði og orku- og umhverfistæknifræði skal haga þannig að stúdent geti lokið 220 eininga námi á þremur og hálfu ári. Hámarksnámstími til þess að ljúka BS-prófi í tæknifræði er tíu kennslumisseri frá því er stúdent var skrásettur í viðkomandi nám.
- Núverandi 4. málsliður 1. mgr. orðast svo: Kennslu til meistaraprófs í rafmagns- og tölvuverkfræði, rafmagnsverkfræði og tölvuverkfræði til 120 eininga skal haga þannig að stúdent geti lokið náminu á tveimur árum.
4. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 10. júní 2014.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 26. júní 2014