Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
7. maí 2026
Útgáfudagur
8. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 467/2026
7. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.
Nýtt deiliskipulag fyrir rannsóknarborholur í Krýsuvík.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 11. mars 2026 nýtt deiliskipulag fyrir rannsóknarborholur í Krýsuvík.
Í tillögunni er gert ráð fyrir allt að 10.200 fermetra borteig með 3 borstæðum þar sem bora má allt að 3 rannsóknarborholur. Gert er ráð fyrir að boraðar verði allt að 3 stefnuboraðar holur 2.650–2.800 metra langar.
Aðkoma er frá Krýsuvíkurvegi. Skolvatn fyrir borun er fengið úr Kleifarvatni um plastlögn ofanjarðar sem fjarlægð verður að borunum loknum.
Áhersla er lögð vandaðan frágang þar sem svæðið er innan Reykjanesfólkvangs. Aðlaga þarf borteig og vegslóða að landslagi og græða upp í samráði við Hafnarfjarðarkaupstað. Gæta þarf þess að meðhöndlun borsvarfs og skolvatns verði öll á borteig.
Markmið deiliskipulagsins er að fylgja eftir áætlunum HS Orku um rannsóknir til að auka þekkingu vegna hagnýtingar jarðhita á Krýsuvíkursvæðinu, sem er í samræmi við samning Hafnarfjarðar og HS Orku.
Deiliskipulagið byggir á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013–2025 sem var unnin samhliða þessu nýja deiliskipulagi.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
Hafnarfirði, 7. maí 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt.
B deild — Útgáfudagur: 8. maí 2026