Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ríkisskattstjóri
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
10. janúar 2013
Útgáfudagur
11. janúar 2013
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 9/2013
10. janúar 2013
REGLUR
um breyting á reglum nr. 1181/2012, um skattmat vegna tekna manna tekjuárið 2013.
1. gr.
Í stað fjárhæðarinnar „114,80“ í kafla 2.3 Bifreiðahlunnindi undir Takmörkuð afnot kemur: 117,50.
2. gr.
Kafli 2.6 Fargjöld með almenningsfarartækjum – öðrum farartækjum breytist í eftirfarandi:
2.6 Samgöngugreiðslur.
Ekki skal telja til skattskyldra hlunninda greiðslu launagreiðanda á kostnaði launþega vegna ferða milli heimilis og vinnustaðar og/eða vegna ferða í þágu launagreiðanda, ef nýttar eru almenningssamgöngur eða vistvænn samgöngumáti að hámarki samtals 7.000 kr. á mánuði og að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:
- Undirritaður sé formlegur samningur milli launagreiðanda og launþega um nýtingu á almenningssamgöngum eða vistvænum ferðamáta vegna ferða launþegans til og frá vinnu sinnar og/eða vegna ferða í þágu launagreiðanda.
- Með vistvænum samgöngumáta er átt við að nýttur sé annar ferðamáti en með vélknúnum ökutækjum samkvæmt skilgreiningu umferðarlaga, t.d. reiðhjól eða ganga.
- Séu framangreind skilyrði ekki uppfyllt er alltaf um að ræða skattskyld hlunnindi án frádráttar ef greiðsla er vegna ferða launþega til og frá vinnu.
3. gr.
Í stað fjárhæðanna „114,80“, „132,02“ og „166,46“ í kafla 3.1 Frádráttur kostnaðar á móti ökutækjastyrk, kemur: 117,50, 135,13 og 170,38.
4. gr.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðluðust gildi og komu til framkvæmda frá og með 1. janúar 2013.
Reykjavík, 10. janúar 2013.
Skúli Eggert Þórðarson