Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Kópavogsbær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Kópavogur
Undirritunardagur
24. september 2026
Útgáfudagur
8. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1073/2026
24. september 2026
AUGLÝSING
um afgreiðslu Kópavogsbæjar á tillögu að breyttu deiliskipulagi.
Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs 25. ágúst 2026 breytingu á deiliskipulagi Lindahverfis sunnan Fífuhvammsvegar fyrir lóð nr. 2 við Askalind. Í breytingunni felst hækkun núverandi húss um eina hæð ásamt því að bæta við stigahúsi með lyftu norðanmegin við húsið og fjölga bílastæðum. Breytingin felur í sér stækkun um 414,8 m². Þá er gerð kvöð um gróður á lóðinni. Að öðru leyti er vísað til gildandi skilmála.
Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Skipulagið öðlast þegar gildi.
Kópavogi, 24. september 2026.
Auður D. Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 8. október 2026