Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Múlaþing
Málaflokkur
Félagsmál, Múlaþing
Undirritunardagur
16. desember 2025
Útgáfudagur
7. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1611/2025
16. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Múlaþingi.
1. gr.
Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk er gjaldfrjáls frá kl. 8–16.30 alla virka daga innan þéttbýliskjarna Múlaþings.
2. gr.
Varðandi akstur sem er samþykktur á grundvelli 4. mgr. 7. gr. reglna Múlaþings um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk er greitt á eftirfarandi hátt:
Í dreifbýli og á milli þéttbýliskjarna er gjald fyrir hverja ferð kr. 342.
Varðandi sérstaka samninga sem félagsþjónustan gerir vegna ferðaþjónustu við einstaklinga er tekið mið af útreikningum FÍB, sjá rekstur-bifreida-januar-2025-bensin-og-rafbilar.pdf. Samkvæmt þeirra viðmiðunum eru greiddar 94,01 kr. á hvern ekinn km (flokkur A, B, C, D og E 1. lið).
3. gr.
Gjaldskrá þessi sem var samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 15. desember 2025 er sett með stoð í 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Múlaþingi, nr. 1626/2024.
Múlaþingi, 16. desember 2025.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 7. janúar 2026