Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húnabyggð
Málaflokkur
Sorphreinsun, Húnavatnssýslur
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
30. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1698/2025
15. desember 2025
GJALDSKRÁ
úrgangsmála í Húnabyggð.
1. gr.
Árlegt sorphirðugjald, vegna sorphirðu, sorpeyðingar og afnota af gámasvæði í Húnabyggð er sem hér segir:
| 1.1 | Á hverja íbúð og á lögbýli eða íbúðarhús sem hirt er á 21 dags fresti: | |
| Sorphirðugjald | 49.210 kr. | |
| Sorpförgunargjald | 49.210 kr. | |
| Samtals | 98.420 kr. | |
| Þar sem eru stærri tunnur en 240 lítra þá eru gjöldin eftirfarandi: | ||
| 660 lítra tunna | 196.850 kr. | |
| 1.100 lítra tunna | 309.550 kr. | |
| Gjald samkvæmt þessum lið miðast við að sorp sé hirt úr einu 240 lítra sorpíláti fyrir almennt sorp og einu 240 lítra sorpíláti fyrir pappír á hvern greiðanda. Óski greiðendur eftir fleiri sorpílátum skal greiða 98.420 kr. fyrir hvert viðbótar 240 lítra sorpílát. | ||
| 1.2 | Fyrir sumarhús, 38.420 kr. sorpförgunargjald, enda geti notendur þeirra losað sig við sorp á gámasvæði sveitarfélagsins samkvæmt gildandi reglum þar um. | |
| 1.3 | Fyrir hesthús og gripahús í þéttbýli, 38.420 kr. á hús enda geta eigendur notað gámasvæði sveitarfélagsins samkvæmt gildandi reglum þar um. | |
| Fyrir hverja heimsókn á lögbýli til að sækja heyrúlluplast til förgunar eru greiddar 14.000 kr. auk virðisaukaskatts. | ||
2. gr.
Gjald fyrir sorphirðu og sorpeyðingu skv. 1. gr. skal innheimta með fasteignagjöldum.
3. gr.
Að lokinni álagningu gjalda skv. 1. gr. gefst greiðendum 30 daga frestur til að gera athugasemdir við gjaldtöku sveitarstjórnar. Ósk um breytingu gjalda skal vera skrifleg og vel rökstudd og er sveitarstjórn heimilt að breyta gjaldtöku með tilliti til réttmætis framsettra athugasemda.
4. gr.
Gjaldskrá endurvinnslustöðvar er sem hér segir og þarf úrgangsflokkur að vera staðfestur af starfsmanni á gámastöð.
Afgreiðslugjald á gjaldskyldum flokkum er að lágmarki 2.160 kr. með vsk. Þeir sem koma með úrgang á gámastæðið að Efstubraut 5a, Blönduósi greiða eftir rúmmáli fyrir losun á úrgangi í eftirtöldum flokkum:
| Stærð farms: | 0,25 m³ | 0,50 m³ | 0,75 m³ | 1 m³ |
| Gjald | 2.550 kr. | 5.100 kr. | 7.650 kr. | 10.200 kr. |
Stærri farmar eftir magni að 5 m³ er reiknað út frá 1 m³ gjaldi. Þegar um stærri farma er að ræða (5-10 m³) þarf að semja sérstaklega um móttöku þeirra.
| Gjaldskylt frá heimilum | Gjaldskylt frá rekstraraðilum | |
| Vörubretti, kassar o.þ.h. | Já | Já |
| Timbur – þar með talið ljós-/hvítmálað eða plasthúðað frá framkvæmdum | Já | Já |
| Húsgögn, bólstruð húsgögn, dýnur o.þ.h. | Já | Já |
| Grófur úrgangur frá framkvæmdum (t.d. steinefni, steypubrot o.s.frv.) | Já | Já |
| Blandaður úrgangur frá framkvæmdum | Já | Já |
| Blandaður heimilisúrgangur o.þ.h. | Nei | Já |
| Gler (bílrúður, rúðugler o.s.frv.) | Já | Já |
| Jarðvegur (mold, möl, sandur o.þ.h.) | Já | Já |
| Garðaúrgangur (gras, hey, laufblöð o.þ.h.) | Já | Já |
| Tré og trjágreinar | Já | Já |
| Brotajárn og málmar | Já | Já |
| Raftæki (rafhlöður, heimilistæki, kaplar o.þ.h.) | Nei | Já |
Flokkaður úrgangur sem fer til endurvinnslu er án gjalds fyrir alla. Flokkaður úrgangur skal vera án aðskotahluta eða mengandi efna í samræmi við reglur um flokkun og móttöku úrgangs.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Húnabyggðar 15. desember 2025 á grundvelli samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Húnabyggð og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Húnabyggð, nr. 91/2025.
Blönduósi, 15. desember 2025.
Pétur Arason sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 30. janúar 2026