Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Útlendingar
Undirritunardagur
11. júní 2026
Útgáfudagur
11. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 668/2026
11. júní 2026
REGLUGERÐ
um evrópska fingrafaragrunninn (Eurodac).
1. gr. Gildissvið.
Í reglugerð þessari eru útfærð nánar ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1358 frá 14. maí 2024 um stofnun evrópska fingrafaragrunnsins „Eurodac“ til að bera saman lífkennaupplýsingar í því skyni að stuðla að skilvirkri beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 og (ESB) 2024/1350 og tilskipunar ráðsins 2001/55/EB og til að staðfesta deili á ríkisborgurum þriðju landa og ríkisfangslausum einstaklingum sem dvelja þar ólöglega og um beiðnir löggæsluyfirvalda aðildarríkjanna og Löggæslusamvinnustofnunar Evrópusambandsins um samanburð við gögn í evrópska fingrafaragrunninum í löggæslutilgangi, um breytingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1240 og (ESB) 2019/818 og um niðurfellingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 603/2013, að því marki sem Ísland er bundið af ákvæðum hennar samkvæmt lögum um útlendinga, nr. 80/2016.
Reglugerðin gildir um töku, skráningu og vinnslu lífkenna- og persónupplýsinga ríkisborgara þriðju ríkja í evrópska fingrafaragrunninum (hér eftir Eurodac-kerfið) og um hlutverk og ábyrgð lögreglu og ríkislögreglustjóra samkvæmt reglugerð (ESB) 2024/1358.
2. gr. Aðgangur að Eurodac-kerfinu.
Lögregla skal hafa aðgang að Eurodac-kerfinu í þeim tilgangi sem tilgreindur er í reglugerð (ESB) 2024/1358.
3. gr. Taka, skráning og vinnsla lífkenna- og persónuupplýsinga.
Lögregla skal veita ríkisborgara þriðja ríkis þær upplýsingar sem kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 42. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358.
Lögregla skal annast töku lífkennaupplýsinga, þ.e. fingrafara og andlitsmynda, af ríkisborgara þriðja ríkis í samræmi við skilyrði reglugerðar (ESB) 2024/1358.
Lögregla skal skrá lífkennaupplýsingar skv. 2. mgr. í Eurodac-kerfið, ásamt þeim persónuupplýsingum og öðrum upplýsingum sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2024/1358 og við eiga.
Lögregla skal annast sannprófun og staðfestingu samsvörunar upplýsinga í Eurodac-kerfinu og miðla niðurstöðum til Útlendingastofnunar án tafar.
Útlendingastofnun er heimilt að nýta upplýsingar úr Eurodac-kerfinu við meðferð mála og ákvarðanatöku samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 frá 14. maí 2024 um stjórnun verndarmála og fólksflutninga, um breytingu á reglugerðum (ESB) 2021/1147 og (ESB) 2021/1060 og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 604/2013.
Við töku lífkennaupplýsinga af fylgdarlausu barni skal starfsmaður barnaverndarþjónustu fylgja því og gæta hagsmuna þess til samræmis við 3. málsl. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358.
4. gr. Ábyrgð ríkislögreglustjóra vegna Eurodac-kerfisins.
Ríkislögreglustjóri ber ábyrgð á tengingu við miðlæga Eurodac-kerfið.
Ríkislögreglustjóri veitir lögreglu viðeigandi aðgang að Eurodac-kerfinu og heldur skrár yfir það starfsfólk sem hefur heimild til að færa inn eða sækja gögn í kerfið, sbr. 2. málsl. 5. mgr. 41. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358.
Ríkislögreglustjóri skal tryggja öryggi upplýsinga eins og mælt er fyrir um í 2. mgr. 36. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358.
Ríkislögreglustjóri skal tryggja öryggi gagna áður en þau eru send og meðan á sendingu þeirra stendur til Eurodac-kerfisins og gera skriflega öryggisáætlun, sem skal meðal annars miða að því að tryggja að óviðkomandi fái ekki aðgang að kerfinu eða geti haft áhrif á skráningu gagna í það, og ber jafnframt ábyrgð á því að henni sé fylgt, sbr. 1. og 2. mgr. 48. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358.
Ríkislögreglustjóri ber jafnframt ábyrgð skv. 3. mgr. 48. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358 á að tilkynna um öryggisatvik tengd Eurodac-kerfinu sem greinast í kerfum þess til Stofnunar Evrópusambandsins um rekstur stórra upplýsingatæknikerfa.
5. gr. Ábyrgð lögreglu á vinnslu persónuupplýsinga í Eurodac-kerfinu.
Lögregla skal eyða upplýsingum um ríkisborgara þriðja ríkis úr kerfinu til samræmis við 1. mgr. 30. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358, að fenginni tilkynningu frá Útlendingastofnun um að skilyrði fyrir eyðingu séu uppfyllt.
Lögregla ber ábyrgð á framkvæmd þeirra skyldna sem kveðið er á um í 1. og 3. mgr. 36. gr., 2. og 3. mgr. 37. gr. og 1. og 6. mgr. 38. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358. Ríkislögreglustjóri annast þó tilkynningar til Stofnunar Evrópusambandsins um rekstur stórra upplýsingatæknikerfa samkvæmt 6. mgr. 38. gr. sömu reglugerðar að beiðni lögreglu.
Stjórnvald sem verður vart við að upplýsingar hafi verið skráðar í Eurodac-kerfið í andstöðu við reglugerð (ESB) 2024/1358 skal án tafar tilkynna það lögreglu. Ríkislögreglustjóri ber ábyrgð á að koma slíkri tilkynningu á framfæri við Stofnun Evrópusambandsins um rekstur stórra upplýsingatæknikerfa, framkvæmdastjórnina og viðkomandi upprunaaðildarríki að beiðni lögreglu sem annast eftir atvikum leiðréttingu eða eyðingu upplýsinga til samræmis við 2. málsl. 5. mgr. 40. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358.
Lögregla telst ábyrgðaraðili fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram samkvæmt reglugerð (ESB) 2024/1358 og reglugerð þessari, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.
6. gr. Vinnsla persónuupplýsinga og eftirlit.
Lögreglu, Útlendingastofnun og ríkislögreglustjóra er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga, að því marki sem slík vinnsla telst nauðsynleg við framkvæmd þessarar reglugerðar og reglugerðar (ESB) 2024/1358, og í samræmi við skilyrði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og laga um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi.
Persónuvernd ber ábyrgð á óháðu eftirliti með því hvort vinnsla persónuupplýsinga fari fram með lögmætum hætti, þ.m.t. sending þeirra til og frá Eurodac-kerfinu, sbr. 1. mgr. 44. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358.
7. gr. Réttindi skráðra einstaklinga.
Lögregla er ábyrgt stjórnvald skv. 43. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1358 og skal taka við og vinna beiðnir einstaklinga samkvæmt því ákvæði.
Ákvarðanir lögreglu samkvæmt þessari grein er heimilt að bera undir Persónuvernd samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
8. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 41. tölul. 2. mgr. 120. gr. laga um útlendinga og öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 11. júní 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild — Útgáfudagur: 11. júní 2026