Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Húsnæðismál

Undirritunardagur

20. nóvember 2025

Útgáfudagur

27. nóvember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 76/2025

20. nóvember 2025

LÖG

um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994 (dýrahald).

Handhafar valds forseta Íslands
  samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru:

1. gr.

33. gr. e og 33. gr. f laganna falla brott, ásamt fyrirsögnum.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. g laganna:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsi er ekki háð samþykki eigenda fjöleignarhúss.
  2. Í stað orðsins „þau“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: hundar.
  3. Í stað tilvísunarinnar „4. mgr.“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: 5. mgr.
  4. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Húsfélag getur sett nánari reglur um hunda- og/eða kattahald á húsfundi með samþykki allra eigenda enda séu þær eðlilegar, málefnalegar og á jafnræði reistar.
  5. 4. mgr. orðast svo:
    Ef hundur eða köttur veldur íbúum fjöleignarhúss verulegum ama, ónæði eða truflun og eigandi dýrsins ræður ekki bót þar á þrátt fyrir áminningar húsfélags getur húsfélagið með samþykki ⅔ hluta eigenda, bæði miðað við fjölda og eignarhluta, bannað viðkomandi hunda- eða kattahald og gert eigandanum að fjarlægja dýrið úr húsinu. Hið sama gildir brjóti eigandi dýrs verulega eða ítrekað gegn skyldum sínum þrátt fyrir áminningar húsfélags. Ef allt um þrýtur geta gróf eða ítrekuð brot leitt til þess að húsfélagið beiti úrræðum skv. 55. gr. gagnvart eiganda dýrsins.
  6. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Hundar og kettir.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 41. gr. laganna:

  1. 13. tölul. A-liðar orðast svo: Reglur um hunda- og/eða kattahald, sbr. 4. mgr. 33. gr. g.
  2. 10. tölul. B-liðar orðast svo: Bann við hunda- og/eða kattahaldi tiltekins eiganda, ef dýr veldur íbúum fjöleignarhúss verulegum ama, ónæði og truflunum og eigandi dýrsins ræður ekki bót þar á eða ef eigandi dýrs brýtur verulega eða ítrekað gegn skyldum sínum, sbr. 5. mgr. 33. gr. g.

4. gr.

5. tölul. 3. mgr. 74. gr. laganna fellur brott.

5. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 20. nóvember 2025.

Kristrún Frostadóttir.

Þórunn Sveinbjarnardóttir.

(L. S.)

Sigurður Tómas Magnússon.

Inga Sæland.

A deild — Útgáfudagur: 27. nóvember 2025

Tengd mál