Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
16. september 2025
Útgáfudagur
30. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1026/2025
16. september 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
1.39 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/1471 frá 18. júlí 2025 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.39.
2.44 Reglugerð ráðsins (EB) 2025/1472 frá 18. júlí 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.44.
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 16. september 2025.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2025/1471
frá 18. júlí 2025
um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 15. október 2012 samþykkti ráðið ákvörðun 2012/642/SSUÖ(1).
2) Hinn 24. febrúar 2022 tilkynnti forseti Rússneska sambandsríkisins um hernaðaraðgerð í Úkraínu og rússneskur herafli hóf árás á Úkraínu, þ.m.t. frá yfirráðasvæði Belarús. Sú árás var blygðunarlaust brot á landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.
3) Í ályktunum sínum frá 19. febrúar 2024 fordæmdi ráðið harðlega áframhaldandi stuðning stjórnarinnar í Belarús við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og fór fram á að Belarús taki ekki þátt í slíkum aðgerðum og að landið fari að alþjóðlegum skuldbindingum sínum.
4) Í ljósi þess hversu alvarleg staðan er og til að bregðast við áframhaldandi þátttöku Belarús í árásum Rússlands gegn Úkraínu þykir rétt að innleiða viðbótarþvingunaraðgerðir.
5) Einkum þykir rétt að leggja bann við kaupum frá Belarús á hvers kyns vopnum og tengdum hergögnum.
6) Til að auka skilvirkni þvingunaraðgerða, sem gripið er til í því skyni að bregðast við árásarstríði Rússlands gegn Úkraínu, er nauðsynlegt að bregðast við hættunni á því að þær verði sniðgengnar með óbeinum útflutningi um þriðju lönd. Tilteknar vörur og tækni kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála, þ.m.t. þegar þær eru fluttar út undir því yfirskini að þær séu ætlaðar til borgaralegra nota. Bannið við óbeinum útflutningi tekur til útflutnings á hlutum sem falla undir þvingunaraðgerðir, þ.m.t. í gegnum þriðja land. Lögbær stjórnvöld ættu að grípa tímanlega til fyrirbyggjandi aðgerða ef trúverðug hætta er á að slíkum hlutum, sem fluttir eru út til þriðju landa, gæti að lokum verið beint til Belarús. Því þykir rétt að sjá aðildarríkjum fyrir valkvæðu stjórnsýslufyrirkomulagi sem gerir lögbærum innlendum stjórnvöldum kleift að krefjast fyrirframleyfis fyrir útflutningi hluta, sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála, til hvaða þriðja lands sem er hafi útflytjandinn verið upplýstur um að nægileg ástæða sé til að ætla að lokaákvörðunarstaður hlutanna kunni að vera í Belarús eða þeir kunni að vera til endanlegra nota fyrir rekstrareiningar í Belarús. Þessari ráðstöfun er ekki ætlað að koma á nýrri almennri takmörkun heldur að sjá aðildarríkjunum fyrir verkfæri, sem er skilvirkt og í samræmi við meðalhóf, til að rannsaka og koma í veg fyrir hugsanlega sniðgöngu þvingunaraðgerða, jafnframt því að tryggja samræmda túlkun og skýrleika laga fyrir útflytjendur. Ráðstöfunin ætti ekki að hafa áhrif á gildissvið ákvæðisins um bann við óbeinum útflutningi. Það er aðildarríkjanna að ákveða hvort beita beri þessari ráðstöfun eða ákvæðinu um bann við óbeinum útflutningi sem fyrirkomulagi til framfylgdar í tilvikum þar sem lokaákvörðunarstaður hlutanna kann að vera í Belarús eða þeir kunna að vera til endanlegra nota fyrir rekstrareiningar í Belarús.
7) Einnig þykir rétt að víkka út í viðskiptabann gildandi bann við að veita sérhæfða sendingarþjónustu á sviði fjármála til tiltekinna lánastofnana og dótturfélaga þeirra í Belarús sem eru mikilvæg fyrir fjármálakerfi Belarús og falla þegar undir þvingunaraðgerðir sem Sambandið hefur gripið til. Að auki þykir viðeigandi að bæta við undanþágum sem tengjast starfsemi sendi- og ræðisskrifstofa Sambandsins og aðildarríkjanna eða samstarfslanda í Belarús og viðskiptum ríkisborgara aðildarríkis sem eru búsettir í Belarús. Einnig þykir rétt að bæta við undanþágu vegna viðskipta sem eru algerlega nauðsynleg til þess að losa um fjárfestingar í Belarús eða slíta þar atvinnustarfsemi. Hafa ber hugfast að þvingunaraðgerðir Sambandsins hafa ekki áhrif utan yfirráðasvæðis þess og eru ekki bindandi fyrir rekstraraðila sem eru skráðir samkvæmt lögum þriðju landa, þ.m.t. lögum Belarús. Því geta viðskipti milli lögaðila, rekstrareininga eða stofnana, sem eru skráðar eða löglega stofnaðar samkvæmt lögum aðildarríkis, og dótturfélaga þeirra í þriðju löndum ekki talist brot á þessu banni, þ.m.t. þegar lána- eða fjármálastofnanir sem falla undir bannið taka þátt í slíkum viðskiptum. Undanþágurnar og frávikið í 2. gr. y í ákvörðun 2012/642/SSUÖ hafa ekki áhrif á bannið við því að rekstraraðilar í Sambandinu veiti rekstrareiningum, sem eru á skrá í V. viðauka, sendingarþjónustu á sviði fjármála.
8) Að auki þykir rétt að auka við skrána yfir hluti, sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála, með því að bæta við hlutum sem Rússland hefur notað í árásarstríði sínu gegn Úkraínu og hlutum sem stuðla að þróun eða framleiðslu hernaðarkerfa Belarús, þ.m.t. kemísk forefni fyrir orkurík efni, varahlutir í vélaverkfæri, viðbótartölvustýringarvélar og efnishlutar drifefna.
9) Enn fremur þykir rétt að auka við skrána yfir vörur sem falla undir útflutningstakmarkanir og gætu stuðlað að því að auka getu Belarús á sviði iðnaðar, s.s. vélbúnaði, kemískum efnum og sumum tegundum málma og plasts. Til að lágmarka hættu á sniðgöngu þvingunaraðgerða þykir einnig rétt að auka enn frekar við skrána yfir vörur og tækni sem falla undir bann við umflutningi um yfirráðasvæði Belarús.
10) Aðildarríkin ættu, að teknu tilhlýðilegu tilliti til gildandi alþjóðlegra skuldbindinga sinna, ekki að viðurkenna eða framfylgja lögbanni, úrskurði, úrræði, dómi annars dómstóls en dómstóls aðildarríkis eða annarri ákvörðun dómstóls, gerðardóms eða stjórnvalds, sem tekin er í málsmeðferð annars staðar en í aðildarríkjunum, á grundvelli eða sem leiðir af málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt ákvörðun 2012/642/SSUÖ. Skilvirk framkvæmd ákvæðisins um að ekki sé hægt að hafa uppi kröfur ætti að teljast til allsherjarreglu í Sambandinu og aðildarríkjunum að því er varðar viðurkenningu og framfylgd úrskurða gerðardóms eða ákvarðana dómstóla eða stjórnvalda. Af þessu leiðir að viðurkenningu eða framfylgd aðildarríkja á lögbanni, úrskurði, úrræði, dómi annars dómstóls en dómstóls aðildarríkis eða annarri ákvörðun dómstóls, gerðardóms eða stjórnvalds, sem tekin er í málsmeðferð annars staðar en í aðildarríkjunum, á grundvelli eða sem leiðir af málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis sem gæti leitt til efnda á kröfum í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt ákvörðun 2012/642/SSUÖ, ætti að líta á sem brot gegn allsherjarreglu í Sambandinu og aðildarríkjunum. Þetta ákvæði ætti ekki að hafa áhrif á þá skyldu aðildarríkis að taka þátt í og verja sig í máli sem höfðað er gegn því og að óska eftir viðurkenningu og framfylgd úrskurðar sem veitir því rétt til endurgreiðslu kostnaðar.
11) Enda þótt lagt sé bann við því í Sambandinu að framfylgja kröfum í tengslum við ráðstafanir, sem gripið er til samkvæmt ákvörðun 2012/642/SSUÖ, þ.m.t. í málsmeðferðum til lausnar deilumálum utan dómstóla, bendir ýmislegt til þess að aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir í Belarús, eða aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem starfa gegnum eða fyrir hönd einhvers þessara aðila, rekstrareininga eða stofnana í Belarús, eða eru í eigu eða undir stjórn slíkra aðila, rekstrareininga eða stofnana, leiti eða gætu leitað eftir því í misnotkunarskyni að hefja eða reka mál til lausnar deilumáli utan Sambandsins í tengslum við ráðstafanir, sem gripið er til samkvæmt ákvörðun 2012/642/SSUÖ, eða leiti eða gætu leitað eftir því, með ólögmætum hætti, að gerðardómsúrskurður, sem kveðinn er upp í slíkri málsmeðferð til lausnar deilumáli í misnotkunarskyni, verði viðurkenndur eða honum framfylgt. Því er nauðsynlegt að gera lögbærum stjórnvöldum eða Sambandinu, eftir atvikum, kleift að sækja skaðabætur með málarekstri fyrir dómstóli aðildarríkis, þ.m.t. lögfræðikostnað og kostnað sem fellur til ef hinn aðilinn hlítir ekki gerðardómsúrskurði, frá þeim aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum og frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem eiga eða stjórna þessum aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, vegna málsmeðferðar til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt ákvörðun 2012/642/SSUÖ, að því tilskildu að öll tiltæk lagaleg úrræði í viðkomandi lögsögu hafi verið fullreynd. Lögbær stjórnvöld ættu að sækja slíkar skaðabætur í samræmi við lög Sambandsins og hefðbundnar reglur þjóðaréttar.
12) Ef aðildarríki standa frammi fyrir því að gerðardómur úrskurði þeim í óhag í málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis í tengslum við ráðstafanir, sem gripið er til samkvæmt ákvörðun 2012/642/SSUÖ, ættu þau að nýta sér hver þau úrræði til andmæla sem þeim standa til boða í innlendri eða erlendri málsmeðferð um að slíkur úrskurður verði viðurkenndur eða honum framfylgt. Í þessu felst að bera fyrir sig andmæli þess efnis að viðurkenning eða framfylgd úrskurðarins væri í andstöðu við allsherjarreglu í því landi þar sem viðurkenningar og framfylgdar er leitað, í samræmi við samninginn um viðurkenningu og fullnustu erlendra gerðardómsúrskurða frá 1958.
13) Rýmka ætti beitingu ákvæðisins um lögsögu vegna nauðsynjar (forum necessitatis).
14) Einnig þykir rétt að breyta fyrirsögn II. viðauka þannig að þar komi fram öll viðeigandi ákvæði þar sem vísað er til þess viðauka.
15) Frekari aðgerða er þörf af hálfu Sambandsins til þess að hrinda tilteknum ráðstöfunum í framkvæmd.
16) Því ætti að breyta ákvörðun 2012/642/SSUÖ til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun 2012/642/SSUÖ er breytt sem hér segir:
1) Eftirfarandi grein bætist við:
„1. gr. aa
1. Lagt er bann við kaupum, innflutningi eða tilflutningi, með beinum eða óbeinum hætti, á vopnum og tengdum hergögnum af hvaða gerð sem er, þ.m.t. vopn og skotfæri, herfarartæki og -búnaður, búnaður sem ekki er ætlaður ríkisher og varahlutir í fyrrnefnd tól og tæki, til Sambandsins ef þau eru upprunnin í Belarús eða flutt út þaðan.
2. Bönnin í 1. mgr. skulu ekki hafa áhrif á innflutning, kaup eða tilflutning í tengslum við:
a) útvegun varahluta og þjónustu sem eru nauðsynleg vegna viðhalds og öryggis fyrirliggjandi getu í Sambandinu eða
b) efndir samninga sem gerðir voru fyrir 20. júlí 2025 eða fylgisamninga sem eru nauðsynlegir vegna efnda slíkra samninga.
2) Ákvæðum 1. gr. b er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgreinar bætast við:
„3a. Bönnin í 1. og 3. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á vörum sem falla undir SN-númer 3204 11, 3204 12, 3204 13, 3204 14, 3204 15, 3204 16, 3204 17, 3204 18, 3204 19, 3204 20, 3506 10, 3506 91, 3907 10, 3907 21, 3907 30, 3907 50, 3907 61, 3907 69 og 3907 99, sem eru nauðsynlegar vegna efnda, til 21. október 2025, á samningum sem gerðir voru fyrir 20. júlí 2025 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.
3b. Bönnin í 1. og 3. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á vörum sem falla undir SN-númer 9032 89, sem eru nauðsynlegar vegna efnda, til 21. janúar 2026, á samningum sem gerðir voru fyrir 20. júlí 2025 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.“
b) Í stað 13. mgr. kemur eftirfarandi:
„13. Lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna geta heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á eftirfarandi vörum eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur eða veiting tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar sé nauðsynleg vegna persónulegra heimilisnota einstaklinga í Belarús:
a) vörum sem falla undir SN-númer 8417 20,
b) rörum, pípum og píputengjum úr kopar sem falla undir SN-númer 7411 eða 7412 og eru allt að 50 mm að innanmáli,
c) vörum sem falla undir SN-númer 8414 60,
d) vörum sem falla undir SN-númer 3916 20 þegar slíkt er algerlega nauðsynlegt vegna sölu á PVC-gólfefnum.“
3) Ákvæðum 2. gr. d er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein bætist við:
„1aa. Með fyrirvara um bannið við óbeinum útflutningi í 1. mgr. þessarar greinar og 4. gr. reglugerðar (ESB) 2021/821 skal krefjast leyfis fyrir útflutningi á vörum og tækni, sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála, til annars þriðja lands en Belarús hafi útflytjandinn verið upplýstur, af lögbæru stjórnvaldi aðildarríkisins þar sem útflytjandinn er búsettur eða hefur staðfestu, um að hlutirnir sem um ræðir séu eða kunni að vera ætlaðir, í heild eða að hluta, einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Belarús eða til notkunar þar í landi.“
b) Eftirfarandi málsgrein bætist við:
„6a. Þegar leyfis er krafist skv. 1. mgr. aa skulu lögbær stjórnvöld fylgja þeim reglum og verklagsreglum sem mælt er fyrir um í 4. gr. reglugerðar (ESB) 2021/821 sem skulu gilda að breyttu breytanda.“
4) Í stað 2. gr. n kemur eftirfarandi:
„2. gr. n
1. Ekki skal efna kröfur sem tengjast samningi eða viðskiptum þegar ráðstafanir, sem gripið er til samkvæmt þessari ákvörðun, hafa áhrif á framkvæmd þeirra með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, þ.m.t. kröfur um skaðleysisbætur eða aðrar ámóta kröfur, t.d. kröfur um skaðabætur eða kröfur samkvæmt ábyrgðarloforði, einkum kröfur um framlengingu eða greiðslur vegna skuldabréfa, ábyrgðar eða skaðleysisbóta, einkum fjárhagslegrar ábyrgðar eða fjárhagslegra skaðleysisbóta, í hvaða mynd sem er, ef slíkar kröfur eru settar fram af:
a) tilgreindum einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í I. viðauka,
b) einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun, sem um getur í 2. gr. h, 2. gr. i, 2. gr. j eða 2. gr. y eða sem eru á skrá í II., III. eða V. viðauka,
c) öðrum einstaklingi, rekstrareiningu eða stofnun í Belarús, þ.m.t. stjórn Belarús,
d) aðila, rekstrareiningu eða stofnun sem starfar gegnum eða fyrir hönd einhvers þeirra aðila, rekstrareininga eða stofnana sem um getur í a-, b- eða c-lið þessarar málsgreinar.
2. Ekki skal viðurkenna, hrinda í framkvæmd eða framfylgja í aðildarríki lögbanni, úrskurði, úrræði, dómi annars dómstóls en dómstóls aðildarríkis eða annarri ákvörðun dómstóls, gerðardóms eða stjórnvalds, sem tekin er í málsmeðferð annars staðar en í aðildarríkjunum, á grundvelli eða sem leiðir af málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis sem er höfðað gegn aðildarríki og gæti leitt til efndar krafna í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt þessari ákvörðun, ef skírskotað er til þeirra af aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a, b, c- eða d-lið 1. mgr. eða aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eiga eða stjórna þessum aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum.
3. Ekki skal viðurkenna, hrinda í framkvæmd eða framfylgja í aðildarríki beiðni um aðstoð meðan á rannsókn eða annarri málsmeðferð stendur, eða viðurkenna, hrinda í framkvæmd eða framfylgja refsingu eða öðrum viðurlögum sem eru byggð á lögbanni, úrskurði, úrræði, dómi annars dómstóls en dómstóls aðildarríkis eða annarri ákvörðun dómstóls, gerðardóms eða stjórnvalds, sem tekin er í málsmeðferð annars staðar en í aðildarríkjunum, á grundvelli eða sem leiðir af málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis sem er höfðað gegn aðildarríki í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt þessari ákvörðun, ef skírskotað er til þeirra af aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a, b, c- eða d-lið 1. mgr. eða aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eiga eða stjórna þessum aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum.
4. Í málsmeðferð til að framfylgja kröfu skal sá aðili sem leitar eftir því að krafan verði efnd færa sönnur á að ekki sé bannað að efna kröfuna skv. 1. mgr.
5. Ákvæði þessarar greinar eru með fyrirvara um rétt þeirra aðila, rekstrareininga og stofnana, sem um getur í 1. mgr., til að skjóta málum til endurskoðunarvalds dómstóla sem skera úr um hvort lögmætt sé að uppfylla ekki samningsbundnar skyldur í samræmi við þessa ákvörðun.“
5) Eftirfarandi greinar bætast við:
„2. gr. na
Sérhvert aðildarríki skal, eftir atvikum, við dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að sækja, eða eiga rétt á að sækja, hvers kyns beinar eða óbeinar skaðabætur, þ.m.t. vegna lögfræðikostnaðar, sem það aðildarríki stofnar til vegna deilumáls milli fjárfesta og ríkis sem höfðað er gegn aðildarríki í tengslum við ráðstafanir sem gripið er til samkvæmt þessari ákvörðun. Aðildarríkið skal, eftir atvikum, eiga rétt á að sækja slíkar skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem um getur í a-, b-, c- eða d-lið 1. mgr. 2. gr. n, sem hófu, komu að eða tóku þátt í lausn deilumáls milli fjárfesta og ríkis eða sem leitar eftir því að framfylgja úrskurði, ákvörðun eða dómsúrskurði sem tengist lausn deilumáls milli fjárfesta og ríkis, og aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eiga eða stjórna einhverjum þessara aðila, rekstrareininga eða stofnana.
Sambandið skal, eftir atvikum, eiga rétt á að sækja skaðabætur vegna tjóns sem það kann að hafa orðið fyrir með sömu skilyrðum.
2. gr. nb
Aðildarríkin skulu hafa uppi hver þau andmæli sem þeim standa til boða gegn viðurkenningu og fullnustu gerðardómsúrskurða sem kveðnir eru upp þeim í óhag við málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt þessari ákvörðun.“
6) Ákvæðum 2. gr. y er breytt sem hér segir:
a) Í stað 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„1. Lagt er bann við því að eiga, með beinum eða óbeinum hætti, viðskipti við lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem eru á skrá í V. viðauka, eða lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun með staðfestu í Belarús sem er, með beinum eða óbeinum hætti, meira en 50% í eigu rekstrareiningar sem er á skrá í V. viðauka.“
b) Eftirfarandi málsgreinar bætast við:
„1a. Bannið í 1. mgr. gildir ekki um viðskipti:
a) sem eru nauðsynleg vegna starfsemi sendi- og ræðisskrifstofa Sambandsins og aðildarríkjanna eða samstarfslanda í Belarús, þ.m.t. sendinefnda, sendiráða og fastanefnda, eða alþjóðastofnana í Belarús sem njóta friðhelgi að þjóðarétti eða
b) af hálfu ríkisborgara aðildarríkis sem eru búsettir í Belarús og voru það fyrir 24. febrúar 2022.
1b. Þrátt fyrir 1. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, með þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, viðskipti sem eru algerlega nauðsynleg til þess að losa um fjárfestingar í Belarús eða slíta þar atvinnustarfsemi.“
7) Ákvæðum II. viðauka er breytt í samræmi við viðaukann við þessa ákvörðun.
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 18. júlí 2025.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti.
M. BJERRE
(1) Ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ frá 15. október 2012 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 285, 17.10.2012, bls. 1, ELI: http://data.europa.eu/eli/dec/2012/642/oj).
VIÐAUKI
[Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ELI: http://data.europa.eu/eli/dec/2025/1471/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.]
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2025/1472
frá 18. júlí 2025
um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins
í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/1471 frá 18. júlí 2025 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu(1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 18. maí 2006 samþykkti ráðið reglugerð (EB) nr. 765/2006(2).
2) Með reglugerð (EB) nr. 765/2006 koma til framkvæmda þær ráðstafanir sem kveðið er á um í ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ(3).
3) Hinn 18. júlí 2025 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2025/1471 og framkvæmdarákvörðun (SSUÖ) 2025/1461(4).
4) Með ákvörðun 2012/642/SSUÖ er lagt bann við sölu, afhendingu, tilflutningi eða útflutningi til Belarús á hvers kyns vopnum og tengdum hergögnum. Með ákvörðun (SSUÖ) 2025/1471 er enn fremur lagt bann við kaupum frá Belarús á hvers kyns vopnum og tengdum hergögnum.
5) Til að auka skilvirkni þvingunaraðgerða, sem gripið er til í því skyni að bregðast við árásarstríði Rússlands gegn Úkraínu, er nauðsynlegt að bregðast við hættunni á því að þær verði sniðgengnar með óbeinum útflutningi um þriðju lönd. Vörur og tækni sem eru á skrá í V. viðauka a kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála, þ.m.t. þegar þær eru fluttar út undir því yfirskini að þær séu ætlaðar til borgaralegra nota. Bannið við óbeinum útflutningi tekur til útflutnings á hlutum sem eru taldir upp í viðaukunum við reglugerð (EB) nr. 765/2006, þ.m.t. í gegnum þriðja land. Lögbær stjórnvöld ættu að grípa tímanlega til fyrirbyggjandi aðgerða ef trúverðug hætta er á að slíkum hlutum, sem fluttir eru út til þriðju landa, gæti að lokum verið beint til Belarús. Í ákvörðun (SSUÖ) 2025/1471 er aðildarríkjum því séð fyrir valkvæðu stjórnsýslufyrirkomulagi sem gerir lögbærum innlendum stjórnvöldum kleift að krefjast fyrirframleyfis fyrir útflutningi hluta, sem eru skráðir í V. viðauka a, til hvaða þriðja lands sem er hafi útflytjandinn verið upplýstur um að nægileg ástæða sé til að ætla að lokaákvörðunarstaður hlutanna kunni að vera í Belarús eða hlutirnir kunni að vera til endanlegra nota fyrir rekstrareiningar í Belarús. Þeirri ráðstöfun er ekki ætlað að koma á nýrri almennri takmörkun heldur að sjá aðildarríkjunum fyrir verkfæri, sem er skilvirkt og í samræmi við meðalhóf, til að rannsaka og koma í veg fyrir hugsanlega sniðgöngu þvingunaraðgerða, jafnframt því að tryggja samræmda túlkun og skýrleika laga fyrir útflytjendur. Ráðstöfunin ætti ekki að hafa áhrif á gildissvið ákvæðisins um bann við óbeinum útflutningi. Það er aðildarríkjanna að ákveða hvort beita beri þeirri ráðstöfun eða ákvæðinu um bann við óbeinum útflutningi sem fyrirkomulagi til framfylgdar í tilvikum þar sem lokaákvörðunarstaður hlutanna kann að vera í Belarús eða þeir kunna að vera til endanlegra nota fyrir rekstrareiningar í Belarús.
6) Með ákvörðun (SSUÖ) 2025/1471 er gildandi bann við því að veita sérhæfða sendingarþjónustu á sviði fjármála til tiltekinna lánastofnana og dótturfélaga þeirra í Belarús, sem eru mikilvæg fyrir fjármálakerfi Belarús og falla þegar undir þvingunaraðgerðir sem Sambandið hefur gripið til, víkkað út í viðskiptabann. Að auki er í ákvörðun (SSUÖ) 2025/1471 bætt við undanþágum sem tengjast starfsemi sendi- og ræðisskrifstofa Sambandsins og aðildarríkjanna eða samstarfslanda í Belarús og viðskiptum ríkisborgara aðildarríkis sem eru búsettir í Belarús. Í henni er einnig bætt við undanþágu vegna viðskipta sem eru algerlega nauðsynleg til þess að losa um fjárfestingar í Belarús eða slíta þar atvinnustarfsemi. Hafa ber hugfast að þvingunaraðgerðir Sambandsins hafa ekki áhrif utan yfirráðasvæðis þess og eru ekki bindandi fyrir rekstraraðila sem eru skráðir samkvæmt lögum þriðju landa, þ.m.t. lögum Belarús. Því teljast viðskipti milli lögaðila, rekstrareininga eða stofnana, sem eru skráðar eða löglega stofnaðar samkvæmt lögum aðildarríkis, og dótturfélaga þeirra í þriðju löndum ekki brot á því banni, þ.m.t. þegar lána- eða fjármálastofnanir sem falla undir bannið taka þátt í slíkum viðskiptum, sbr. þó 8. gr. i í reglugerð (EB) nr. 765/2006. Undanþágurnar og frávikið í 1. gr. zb í reglugerð (EB) nr. 765/2006 hafa ekki áhrif á bannið við því að rekstraraðilar í Sambandinu veiti rekstrareiningum, sem eru á skrá í XV. viðauka við þá reglugerð, sendingarþjónustu á sviði fjármála.
7) Aðildarríkin ættu, að teknu tilhlýðilegu tilliti til gildandi alþjóðlegra skuldbindinga sinna, ekki að viðurkenna eða framfylgja lögbanni, úrskurði, úrræði, dómi annars dómstóls en dómstóls aðildarríkis eða annarri ákvörðun dómstóls, gerðardóms eða stjórnvalds, sem tekin er í málsmeðferð annars staðar en í aðildarríkjunum, á grundvelli eða sem leiðir af málsmeðferð til lausnar deilumáli fjárfesta og ríkis í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt reglugerð (EB) nr. 765/2006. Skilvirk framkvæmd ákvæðisins um að ekki sé hægt að hafa uppi kröfur ætti að teljast til allsherjarreglu í Sambandinu og aðildarríkjunum að því er varðar viðurkenningu og framfylgd úrskurða gerðardóms eða ákvarðana dómstóla eða stjórnvalda. Af þessu leiðir að viðurkenning eða framfylgd aðildarríkja á lögbanni, úrskurði, úrræði, dómi annars dómstóls en dómstóls aðildarríkis eða annarri ákvörðun dómstóls, gerðardóms eða stjórnvalds, sem tekin er í málsmeðferð annars staðar en í aðildarríkjunum, á grundvelli eða sem leiðir af málsmeðferð til lausnar deilumáli fjárfesta og ríkis, sem gæti leitt til efnda á kröfum í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt reglugerð (EB) nr. 765/2006, ætti að teljast brjóta gegn allsherjarreglu í Sambandinu og aðildarríkjunum. Þetta ákvæði ætti ekki að hafa áhrif á þá skyldu aðildarríkis að taka þátt í og verja sig í máli sem höfðað er gegn því og að óska eftir viðurkenningu og framfylgd úrskurðar sem veitir því rétt til endurgreiðslu kostnaðar.
8) Enda þótt lagt sé bann við því í Sambandinu að framfylgja kröfum í tengslum við ráðstafanir, sem gripið er til samkvæmt reglugerð (EB) nr. 765/2006, þ.m.t. í málsmeðferð til lausnar deilumáli utan dómstóla, bendir ýmislegt til þess að aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir í Belarús, eða aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem starfa gegnum eða fyrir hönd einhvers þessara aðila, rekstrareininga eða stofnana í Belarús, eða eru í eigu eða undir stjórn slíkra aðila, rekstrareininga eða stofnana, leiti eða gætu leitað eftir því í misnotkunarskyni að hefja eða reka mál til lausnar deilumáli utan Sambandsins í tengslum við ráðstafanir, sem gripið er til samkvæmt reglugerð (EB) nr. 765/2006, eða leiti eða gætu leitað eftir því, með ólögmætum hætti, að gerðardómsúrskurður, sem kveðinn er upp í slíkri misnotaðri málsmeðferð til lausnar deilumáli, sé viðurkenndur eða honum framfylgt. Því er nauðsynlegt að gera lögbærum stjórnvöldum eða Sambandinu, eftir atvikum, kleift að sækja skaðabætur með málarekstri fyrir dómstóli aðildarríkis, þ.m.t. lögfræðikostnað og kostnað sem fellur til ef hinn aðilinn hlítir ekki gerðardómsúrskurði, frá þeim aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum og frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem eiga eða stjórna þessum aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, vegna málsmeðferðar til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt reglugerð (EB) nr. 765/2006, að því tilskildu að öll tiltæk lagaleg úrræði í viðkomandi lögsögu hafi verið fullreynd. Lögbær stjórnvöld ættu að sækja slíkar skaðabætur í samræmi við lög Sambandsins og hefðbundnar reglur þjóðaréttar.
9) Ef aðildarríki standa frammi fyrir því að gerðardómur úrskurði þeim í óhag í málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið var til samkvæmt reglugerð (EB) nr. 765/2006, ættu þau að nýta sér hver þau úrræði til andmæla sem þeim standa til boða í innlendri eða erlendri málsmeðferð um að slíkur úrskurður verði viðurkenndur eða honum framfylgt. Í þessu felst að bera fyrir sig andmæli þess efnis að viðurkenning eða framfylgd úrskurðarins væri í andstöðu við allsherjarreglu í því landi þar sem viðurkenningar og framfylgdar er leitað, í samræmi við samninginn um viðurkenningu og fullnustu erlendra gerðardómsúrskurða frá 1958.
10) Rýmka ætti beitingu ákvæðisins um lögsögu vegna nauðsynjar (forum necessitatis) þannig að það nái til 8. gr. l.
11) Með framkvæmdarákvörðun (SSUÖ) 2025/1461 er nýrri rekstrareiningu bætt á skrána yfir einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir sem sett er fram í II. viðauka við ákvörðun 2012/642/SSUÖ sem er skrá yfir aðila, rekstrareiningar og stofnanir sem sæta takmörkunum að því er varðar heimildir til sölu, afhendingar, tilflutnings eða útflutnings á vörum og tækni með tvíþætt notagildi og vörum og tækni sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða þróun á sviði varnar- og öryggismála þess.
12) Samkvæmt ákvörðun (SSUÖ) 2025/1471 er talið rétt að auka við skrána yfir hluti, sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála, með því að bæta við hlutum sem Rússland hefur notað í árásarstríði sínu gegn Úkraínu og hlutum sem stuðla að þróun eða framleiðslu hernaðarkerfa Belarús, þ.m.t. kemísk forefni fyrir orkurík efni, varahlutir í vélaverkfæri, viðbótartölvustýringarvélar og efnishlutar drifefna.
13) Með ákvörðun (SSUÖ) 2025/1471 er talið rétt að auka við skrána yfir vörur sem falla undir útflutningstakmarkanir og gætu stuðlað að því að auka getu Belarús á sviði iðnaðar, s.s. vélbúnaði, kemískum efnum og sumum tegundum málma og plasts. Til að lágmarka hættu á sniðgöngu þvingunaraðgerða er með ákvörðun (SSUÖ) 2025/1471 talið rétt að auka við skrána yfir vörur og tækni sem falla undir bann við umflutningi um yfirráðasvæði Belarús.
14) Þessar aðgerðir falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg, einkum til að tryggt sé að þeim verði beitt með sama hætti í öllum aðildarríkjunum.
15) Því ætti að breyta reglugerð (EB) nr. 765/2006 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Reglugerð (EB) nr. 765/2006 er breytt sem hér segir:
1) Eftirfarandi greinar bætast við:
„1. gr. aa
1. Lagt er bann við kaupum, innflutningi eða tilflutningi, með beinum eða óbeinum hætti, á vörum og tækni á sameiginlegum hergagnalista Evrópusambandsins(5) („sameiginlegi hergagnalistinn“) inn í Sambandið ef þær eru upprunnar í Belarús eða fluttar þaðan út.“
2. Bönnin í 1. mgr. skulu ekki hafa áhrif á innflutning, kaup eða tilflutning í tengslum við:
a) útvegun varahluta og þjónustu sem eru nauðsynleg vegna viðhalds og öryggis fyrirliggjandi getu í Sambandinu eða
b) efndir samninga sem gerðir voru fyrir 20. júlí 2025 eða fylgisamninga sem eru nauðsynlegir vegna efnda slíkra samninga.
1. gr. ab
1. Lagt er bann við sölu, afhendingu, tilflutningi eða útflutningi, með beinum eða óbeinum hætti, á vörum og tækni á sameiginlega hergagnalistanum, hvort sem þær eru upprunnar í Sambandinu eða ekki, til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Belarús eða til notkunar þar í landi.
2. Þrátt fyrir 1. mgr. taka bönnin sem um getur þar ekki til:
a) óbanvæns herbúnaðar sem einungis er ætlaður í mannúðar- eða verndarskyni eða vegna áætlana um stofnanauppbyggingu á vegum Sameinuðu þjóðanna og Sambandsins eða hættustjórnunaraðgerða ESB eða SÞ eða
b) farartækja sem eru ekki notuð í stríðsátökum en eru búin vörn gegn skotflaugum og eru eingöngu ætluð til að vernda starfsfólk Sambandsins og aðildarríkja þess í Belarús,
enda hafi lögbært stjórnvald aðildarríkis áður samþykkt útvegun þeirra, eins og tilgreint er á vefsetrunum sem skráð eru í II. viðauka.
3. Ákvæði 1. mgr. gilda ekki um hlífðarfatnað, þ.m.t. skotheld vesti og herhjálma, sem starfsfólk SÞ, starfsfólk Sambandsins eða aðildarríkja þess, fulltrúar fjölmiðla og starfsmenn hjálpar- og þróunarstofnana og tengt starfsfólk hefur flutt tímabundið út til Belarús eingöngu til eigin nota.
2) Í stað a- til c-liðar 1. mgr. 1. gr. b kemur eftirfarandi:
„a) að veita, með beinum eða óbeinum hætti, tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu sem tengist vörum og tækni á sameiginlega hergagnalistanum eða sem tengjast því að útvega, framleiða, viðhalda og nota vörur á þeim lista, einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Belarús eða til notkunar þar í landi,
b) að veita, með beinum eða óbeinum hætti, tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu vegna tækjabúnaðar, sem nota má til bælingar innanlands, sbr. skrá í III. viðauka, aðila, rekstrareiningu eða stofnun í Belarús eða til notkunar þar í landi,
c) að útvega, með beinum eða óbeinum hætti, fjármagn eða fjárhagsaðstoð sem tengist sölu, afhendingu, tilflutningi eða útflutningi á vörum og tækni á sameiginlega hergagnalistanum eða í III. viðauka, eða veita tengda tækniþjónustu, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu aðila, rekstrareiningu eða stofnun í Belarús eða til notkunar þar í landi,“.
3) Ákvæðum 1. gr. bb er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgreinar bætast við:
„3a. Bönnin í 1. og 3. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á vörum sem falla undir SN-númer 3204 11, 3204 12, 3204 13, 3204 14, 3204 15, 3204 16, 3204 17, 3204 18, 3204 19, 3204 20, 3506 10, 3506 91, 3907 10, 3907 21, 3907 30, 3907 50, 3907 61, 3907 69 og 3907 99, eins og tilgreint er í VIII. viðauka, sem eru nauðsynlegar vegna efnda, til 21. október 2025, á samningum sem gerðir voru fyrir 20. júlí 2025 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.
3b. Bönnin í 1. og 3. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á vörum sem falla undir SN-númer 9032 89, eins og tilgreint er í VIII. viðauka, sem eru nauðsynlegar vegna efnda, til 21. janúar 2026, á samningum sem gerðir voru fyrir 20. júlí 2025 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.“
b) Í stað 13. mgr. kemur eftirfarandi:
„13. Lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna geta heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á eftirfarandi vörum eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur eða veiting tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar sé nauðsynleg vegna persónulegra heimilisnota einstaklinga í Belarús:
a) vörum sem falla undir SN-númer 8417 20,
b) rörum, pípum og píputengjum úr kopar sem falla undir SN-númer 7411 eða 7412 og eru allt að 50 mm að innanmáli,
c) vörum sem falla undir SN-númer 8414 60,
d) vörum sem falla undir SN-númer 3916 20 þegar slíkt er algerlega nauðsynlegt vegna sölu á PVC-gólfefnum.“
4) Ákvæðum 1. gr. f er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein bætist við:
„1aa. Með fyrirvara um bannið við óbeinum útflutningi í 1. mgr. þessarar greinar og 4. gr. reglugerðar (ESB) 2021/821 skal krefjast leyfis fyrir útflutningi á vörum og tækni, sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála, eins og skráð er í V. viðauka a við þessa reglugerð, til annars þriðja lands en Belarús hafi útflytjandinn verið upplýstur, af lögbæru stjórnvaldi aðildarríkisins þar sem útflytjandinn er búsettur eða hefur staðfestu, um að hlutirnir sem um ræðir séu eða kunni að vera ætlaðir, í heild eða að hluta, einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Belarús eða til notkunar þar í landi.“
b) Eftirfarandi málsgrein bætist við:
„6a. Þegar leyfis er krafist skv. 1. mgr. aa skulu lögbær stjórnvöld fylgja þeim reglum og verklagsreglum sem mælt er fyrir um í 4. gr. reglugerðar (ESB) 2021/821 sem skulu gilda að breyttu breytanda.“
5) Ákvæðum 1. gr. zb er breytt sem hér segir:
a) Í stað 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„1. Lagt er bann við því að eiga, með beinum eða óbeinum hætti, viðskipti við lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem eru á skrá í XV. viðauka, eða lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun með staðfestu í Belarús sem er, með beinum eða óbeinum hætti, meira en 50% í eigu rekstrareiningar sem er á skrá í XV. viðauka.“
b) Eftirfarandi málsgreinar bætast við:
„1a. Bannið í 1. mgr. gildir ekki um viðskipti:
a) sem eru nauðsynleg vegna starfsemi sendi- og ræðisskrifstofa Sambandsins og aðildarríkjanna eða samstarfslanda í Belarús, þ.m.t. sendinefnda, sendiráða og fastanefnda, eða alþjóðastofnana í Belarús sem njóta friðhelgi að þjóðarétti eða
b) af hálfu ríkisborgara aðildarríkis sem eru búsettir í Belarús og voru það fyrir 24. febrúar 2022.
1b. Þrátt fyrir 1. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, með þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, viðskipti sem eru algerlega nauðsynleg til þess að losa um fjárfestingar í Belarús eða slíta þar atvinnustarfsemi.“
6) Í 8. gr. d bætast eftirfarandi málsgreinar við:
„2a. Ekki skal viðurkenna, hrinda í framkvæmd eða framfylgja í aðildarríki lögbanni, úrskurði, úrræði, dómi annars dómstóls en dómstóls aðildarríkis eða annarri ákvörðun dómstóls, gerðardóms eða stjórnvalds, sem tekin er í málsmeðferð annars staðar en í aðildarríkjunum, á grundvelli eða sem leiðir af málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis sem er höfðað gegn aðildarríki og gæti leitt til efndar krafna í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið er til samkvæmt þessari reglugerð, ef skírskotað er til þeirra af aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a, b, c- eða d-lið 1. mgr. eða aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eiga eða stjórna þessum aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum.
2b. Ekki skal viðurkenna, hrinda í framkvæmd eða framfylgja í aðildarríki lögbanni, úrskurði, úrræði, dómi annars dómstóls en dómstóls aðildarríkis eða annarri ákvörðun dómstóls, gerðardóms eða stjórnvalds, sem tekin er í málsmeðferð annars staðar en í aðildarríkjunum, á grundvelli eða sem leiðir af málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis sem er höfðað gegn aðildarríki og gæti leitt til efndar krafna í tengslum við ráðstafanir, sem gripið er til samkvæmt þessari reglugerð, ef skírskotað er til þeirra af aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a, b, c- eða d-lið 1. mgr. eða aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eiga eða stjórna þessum aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum.
7) Í stað 8. gr. k kemur eftirfarandi:
„8. gr. k
Ef enginn dómstóll aðildarríkis hefur lögsögu samkvæmt öðrum ákvæðum laga Sambandsins eða laga aðildarríkis getur dómstóll aðildarríkis, í undantekningartilvikum, hlýtt á skaðabótakröfu sem er höfðuð skv. 8. gr. h eða 8. gr. l, að því tilskildu að málið hafi nægileg tengsl við aðildarríki dómstólsins sem fær málið til sín.“
8) Eftirfarandi greinar bætast við:
„8. gr. l
Sérhvert aðildarríki skal, eftir atvikum, við dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að sækja, eða eiga rétt á að sækja, hvers kyns beinar eða óbeinar skaðabætur, þ.m.t. vegna lögfræðikostnaðar sem það aðildarríki stofnar til vegna málsmeðferðar til lausnar deilumáli fjárfesta og ríkis sem höfðað er gegn aðildarríki í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið er til samkvæmt þessari reglugerð. Aðildarríkið skal, eftir atvikum, eiga rétt á að sækja slíkar skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem um getur í a-, b-, c- eða d-lið 1. mgr. 8. gr. d, sem hófu, komu að eða tóku þátt í lausn deilumáls milli fjárfesta og ríkis eða sem leitar eftir því að framfylgja úrskurði, ákvörðun eða dómsúrskurði sem tengist lausn deilumáls milli fjárfesta og ríkis, og aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eiga eða stjórna einhverjum þessara aðila, rekstrareininga eða stofnana.
Sambandið skal, eftir atvikum, eiga rétt á að sækja skaðabætur vegna tjóns sem það kann að hafa orðið fyrir með sömu skilyrðum.
8. gr. m
Aðildarríkin skulu hafa uppi hver þau andmæli sem þeim standa til boða gegn viðurkenningu og fullnustu gerðardómsúrskurða sem kveðnir eru upp þeim í óhag við málsmeðferð til lausnar deilumáli milli fjárfesta og ríkis í tengslum við þvingunaraðgerðir sem gripið er til samkvæmt þessari reglugerð.“
9) Viðaukunum er breytt í samræmi við viðaukann við þessa reglugerð.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 18. júlí 2025.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti.
M. BJERRE
(1) Stjtíð. ESB L, 2025/1471, 19.7.2025, ELI: http://data.europa.eu/eli/dec/2025/1471/oj.
(2) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 frá 18. maí 2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 134, 20.5.2006, bls. 1, ELI: http://data.europa.eu/eli/reg/2006/765/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ frá 15. október 2012 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 285, 17.10.2012, bls. 1, ELI: http://data.europa.eu/eli/dec/2012/642/oj).
(4) Stjtíð. ESB L, 2025/1461, 19.7.2025, ELI: http://data.europa.eu/eli/dec_impl/2025/1461/oj.
(5) Síðasta útgáfa er birt í Stjtíð. ESB C, C/2025/1499, 6.3.2025, ELI: http://data.europa.eu/eli/C/2025/1499/oj.“
VIÐAUKI
[Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ELI: http://data.europa.eu/eli/reg/2025/1472/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.]
B deild — Útgáfudagur: 30. september 2025