Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

18. desember 2019

Útgáfudagur

27. desember 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 4/2019

18. desember 2019

AUGLÝSING

um marghliða samning um breytingar á tvísköttunarsamningum til þess að koma í veg fyrir rýrnun skattstofna og tilfærslu

Hinn 26. september 2019 var framkvæmdastjóra Efnahags- og framfarastofnunarinnar afhent aðildarskjal Íslands vegna marghliða samnings um breytingar á tvísköttunarsamningum til þess að koma í veg fyrir rýrnun skattstofna og tilfærslu sem gerður var í París 24. nóvember 2016.

Við afhendingu aðildarskjalsins voru lagðar fram ákveðnar tilkynningar og yfirlýsingar fyrir Íslands hönd í samræmi við 6. mgr. 28. gr. og 3. mgr. 29. gr. samningsins.

Samningurinn öðlast gildi hvað Ísland varðar 1. janúar 2020.

Samningurinn er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari og tilkynningarnar og yfirlýsingarnar sem fylgiskjal 2.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 18. desember 2019.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 27. desember 2019

Tengd mál