Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla
Undirritunardagur
4. maí 2026
Útgáfudagur
19. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 497/2026
4. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna Lækjar, Hafnarlandi.
Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 4. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 25. mars 2026.
Í breytingunni felst að skilgreint er nýtt 15 ha verslunar- og þjónustusvæði VÞ21, þar sem heimiluð er föst búseta. Gert er ráð fyrir tveimur íbúðarhúsum, 13 gistihúsum fyrir allt að 60 gesti og þremur þjónustubyggingum, en heildarbyggingarmagn er allt að 2.130 m². Jafnframt er gert ráð fyrir nýju vatnsbóli VB61. Samhliða minnkar frístundabyggð F22 úr 40 ha í 25 ha og lóðum fækkar úr 40 í 25.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 4. maí 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 19. maí 2026