Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

11. september 2026

Útgáfudagur

25. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1035/2026

11. september 2026

REGLUR

um þjónustuveitendur hópfjármögnunar.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga nr. 51/2026 um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 frá 7. október 2020 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 (hér eftir reglugerð um hópfjármögnun), hvað varðar:

  1. Einstaklingsmiðaða stýringu lánasafns, sbr. 7. mgr. 6. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  2. Kröfur, sniðmát og verklag við meðferð kvartana, sbr. 5. mgr. 7. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  3. Ráðstafanir og kröfur varðandi hagsmunaárekstra, sbr. 7. mgr. 8. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  4. Kröfur og fyrirkomulag umsóknar um starfsleyfi, þ.m.t. eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur, ásamt ráðstöfunum og verklagi varðandi áætlun um rekstrarsamfellu, sbr. 16. mgr. 12. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  5. Staðla, sniðmát og verklagsreglur varðandi upplýsingar í skýrslugjöf, sbr. 3. mgr. 16. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  6. Upplýsingar til viðskiptavina, sbr. 7. mgr. 19. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  7. Aðferðarfræði við útreikning vanskilahlutfalla, sbr. 3. mgr. 20. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  8. Mat og upplýsingar í tengslum við viðeigandi hópfjármögnunarþjónustu til reynslulítilla fjárfesta og hermun á getu til að þola tap, sbr. 8. mgr. 21. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  9. Lykilupplýsingablað fjárfestingar, sbr. 16. mgr. 23. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  10. Eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir tilkynningar á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum í tengslum við markaðsefni, sbr. 5. mgr. 28. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  11. Tilgreiningu upplýsinga í upplýsingaskiptum milli lögbærra yfirvalda, sbr. 8. mgr. 31. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  12. Eyðublöð, sniðmát og verklag við samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda, sbr. 9. mgr. 31. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.
  13. Eyðublöð, sniðmát og verklag við samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda, evrópskra eftirlitsstofnana og Eftirlitsstofnunar EFTA, sbr. 4. mgr. 32. gr. reglugerðar um hópfjármögnun.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2024 frá 15. mars 2024, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 4. júlí 2024, bls. 48-51, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2111 frá 13. júlí 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru kröfur um hagsmunaárekstra fyrir þjónustuveitendur hópfjármögnunar, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 180-183.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2112 frá 13. júlí 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um kröfur og fyrirkomulag fyrir umsókn um starfsleyfi sem þjónustuveitandi hópfjármögnunar, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 184-200.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2113 frá 13. júlí 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda í tengslum við svið rannsókna, eftirlits og framfylgdar í tengslum við evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 201-204.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2114 frá 13. júlí 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreind eru próf á grunnþekkingu og hermun á getu til að mæta tapi fyrir væntanlega reynslulitla fjárfesta í hópfjármögnunarverkefnum, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 205-211.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2115 frá 13. júlí 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreind er aðferðafræði við útreikning á vanskilahlutföllum lána sem eru í boði á hópfjármögnunarvettvangi, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 212-216.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2116 frá 13. júlí 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru ráðstafanir og verklag fyrir rekstrarsamfelluáætlun þjónustuveitenda hópfjármögnunar, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 217-220.
  7. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2117 frá 13. júlí 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru kröfur, stöðluð snið og verklag við meðferð kvartana, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 221-228.
  8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2118 frá 13. júlí 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um einstaklingsmiðaða stýringu lána frá þjónustuveitendum hópfjármögnunar, tilgreining þáttanna í aðferðinni við að meta útlánaáhættu, upplýsingarnar um hvert einstaklingsmiðað eignasafn sem miðla skal til fjárfesta og stefnur og verklagsreglur sem krafist er í tengslum við varasjóði, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 229-241.
  9. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2119 frá 13. júlí 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir lykilupplýsingaskjal fyrir fjárfesta, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 242-254.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2120 frá 13. júlí 2022 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar gagnastaðla og -form, sniðmát og verklagsreglur vegna upplýsingaskýrslugjafar um verkefni sem fjármögnuð eru fyrir milligöngu hópfjármögnunarvettvangs, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 255-264.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2121 frá 13. júlí 2022 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda og Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar í tengslum við evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 265-279.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2122 frá 13. júlí 2022 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda að því er varðar evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 280-298.
  13. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2123 frá 13. júlí 2022 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir tilkynningar lögbærra yfirvalda til Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar um landsbundnar markaðssetningarkröfur sem gilda um þjónustuveitendur hópfjármögnunar, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 69 frá 19. september 2024, bls. 299-304.

Með reglum þessum öðlast einnig gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/358 frá 29. september 2023 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru kröfur um mat á lánshæfi hópfjármögnunarverkefna, verðlagningu hópfjármögnunarútboða og áhættustýringarstefnur og -ferla, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 16-29, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2024 frá 26. apríl 2024 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60 frá 8. ágúst 2024, bls. 32-33, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.

3 gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 11. gr. laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki, nr. 51/2026, taka gildi þegar í stað.

Seðlabanka Íslands, 11. september 2026.

Björk Sigurgísladóttir

varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.

Linda Kolbrún Björgvinsdóttir

framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 25. september 2026

Tengd mál