Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
18. janúar 2012
Útgáfudagur
2. febrúar 2012
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 94/2012
18. janúar 2012
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009, fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Á eftir 2. mgr. 88. gr. bætast við fjórar nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Deildinni er heimilt að gefa kost á viðbótarnámi að loknu fullgildu háskólaprófi.
Diplómanám í hagfræði er 60 eininga sjálfstætt nám að loknu BA/BS-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Hægt er að fá hluta námsins metinn inn í MS-nám í hagfræði.
Diplómanám í heilsuhagfræði er 60 eininga sjálfstætt nám að loknu BA/BS-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Hægt er að fá hluta námsins metinn inn í MS-nám í heilsuhagfræði.
Diplómanám í fjármálahagfræði er 60 eininga sjálfstætt nám að loknu BA/BS-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Hægt er að fá hluta námsins metinn inn í MS-nám í fjármálahagfræði.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 18. janúar 2012.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 2. febrúar 2012