Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Ríkisstofnanir

Undirritunardagur

18. mars 2026

Útgáfudagur

7. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 330/2026

18. mars 2026

GJALDSKRÁ

vegna þjónustu Hagstofu Íslands.

1. gr. Tímavinna.

Innheimt er að lágmarki fyrir eina klukkustund.

Sérfræðingur pr. klst. 

20.800 kr. 

2. gr. Aðgangur að rannsóknarumhverfi Hagstofu Íslands.

Rannsakendur sem fá aðgang að örgögnum á rannsóknarumhverfi Hagstofu Íslands, skulu greiða fyrir það sem hér segir:

Stofngjald rannsóknarverkefnis (gjald pr. klst.)

20.800 kr.

Gögn útbúin og öryggi tryggt (gjald pr. klst.)

20.800 kr.

Rekjanleiki niðurstaðna (gjald pr. klst.)

20.800 kr.

Almenn notendaþjónusta (gjald pr. klst.)

20.800 kr.

Aðgangur að rannsóknarumhverfi og kerfisstjórn í allt að tólf mánuði

104.000 kr.

3. gr. Heimild til samningsgerðar.

Hagstofu Íslands er heimilt að gera sérstaka samninga um þjónustu, skal þá ávallt taka tillit til raunkostnaðar er varðar þjónustuna.

4. gr. Gjald fyrir vinnslu gagna.

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðast við raunkostnað vegna veittrar þjónustu og skulu breytast árlega til samræmis við breytingar á raunkostnaði.

5. gr. Lagaheimild og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 14. gr. laga um Hagstofu Íslands, nr. 163/2007, og opinbera hagskýrslugerð og öðlast þegar gildi, frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um gjaldskrá vegna þjónustu Hagstofu Íslands, nr. 1085/2016.

Forsætisráðuneytinu, 18. mars 2026.

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Daníel Svavarsson.

B deild — Útgáfudagur: 7. apríl 2026

Tengd mál