Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

22. maí 2026

Útgáfudagur

29. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 600/2026

22. maí 2026

REGLUGERÐ

um reglur og kröfur um starfsemi og stjórnun gagnasafns Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðarinnar er að mæla fyrir um reglur og verklagsreglur um stofnun, starfsemi og stjórnun gagnasafns, sem um getur í 74. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1139 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins.

2. gr. Lögbært yfirvald og framkvæmd.

Samgöngustofa er lögbært stjórnvald samkvæmt reglugerð þessari og sér um framkvæmd hennar.

3. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2117 frá 12. október 2023 um nauðsynlegar reglur og ítarlegar kröfur um starfsemi og stjórnun gagnasafns fyrir upplýsingar samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 49/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026 bls. 513-530.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/663 frá 2. apríl 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/2117 að því er varðar skrá yfir upplýsingahluta sem færa skal í gagnasafnið fyrir upplýsingar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES nefndarinnar nr. 50/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026 bls. 531-533.

4. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 11. gr. og 20. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 22. maí 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi