Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Atvinnuréttindi

Undirritunardagur

22. október 2026

Útgáfudagur

11. nóvember 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1200/2026

22. október 2026

REGLUGERÐ um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1089/2012 um menntun, réttindi og skyldur ljósmæðra og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo:

Reglugerð þessi gildir um menntun, réttindi og skyldur ljósmæðra og veitingu starfsleyfa og sérfræðileyfa ljósmæðra.

2. gr.

3. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo:

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem hafa gilt starfsleyfi hér á landi sem hjúkrunarfræðingar og hafa lokið meistaraprófi til starfsleyfis ljósmæðra frá Háskóla Íslands. Starfsleyfi hjúkrunarfræðings, útgefið af embætti landlæknis, er skilyrði fyrir því að hefja nám til starfsleyfis ljósmóður hér á landi.

Nám til starfsleyfis ljósmóður skal vera að lágmarki 120 ECTS eininga nám á meistarastigi og samanstanda af fræðilegri og klínískri kennslu og þjálfun. Við útskrift skal tryggt að eftirfarandi þekkingu og færni sé náð:

  1. Ítarleg þekking á þeim vísindagreinum sem ljósmóðurstarfið byggist á, einkum ljósmóðurfræði, fæðingarfræði og kvensjúkdómafræði.
  2. Fullnægjandi þekking á siðfræði og siðareglum ljósmæðra ásamt lögum og reglum sem gilda um ljósmæður og þeirra störf.
  3. Fullnægjandi grundvallarþekking á heilbrigðisvísindum (líffræðileg virkni, líffærafræði og lífeðlisfræði) og á lyfjafræði á sviði meðgönguverndar, fæðinga, sængurlegu og nýburaumönnunar, sem og þekking á tengslum heilsufars við líkamlegar og félagslegar aðstæður fólks og hegðun þess.
  4. Fullnægjandi klínísk reynsla á viðurkenndum stofnunum og eftir atvikum einnig í umsjá sjálfstætt starfandi ljósmæðra, sem gera ljósmóðurinni kleift að sinna, sjálfstætt og á eigin ábyrgð, meðgönguvernd, fæðingarhjálp, endurlífgun nýbura og umönnun í sængurlegu og geta tekist á við bráðaaðstæður á þeim sviðum, að undanskildum þeim frávikum sem falla eingöngu undir ábyrgð sérfræðilækna.
  5. Fullnægjandi skilning á hæfni og starfssviði annarra heilbrigðisstétta og reynslu af að vinna í þverfaglegu samstarfi.

Veita má leyfi á grundvelli náms frá öðru ríki, að fenginni umsögn skv. 4. gr., þar sem komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að námið sé sambærilegt við nám skv. 1. mgr. og uppfylli lágmarkskröfur 3. mgr. enda hafi námið farið fram í háskóla sem viðurkenndur er af heilbrigðisyfirvöldum í námsríki og hér á landi. Við mat á umsóknum skal taka tillit til gagnkvæmra samninga við önnur ríki um viðurkenningu menntunar og um viðurkenningu starfsréttinda.

Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi ljósmóður sem uppfyllir skilyrði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum eða Sviss til að starfa hér á landi, nr. 510/2020. Uppfylli umsækjandi sem er EES-ríkisborgari ekki skilyrði tilskipunarinnar skal meta umsókn skv. 3. mgr.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegri menntun frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað. Um umsóknir ríkisborgara ríkja sem íslenska ríkið hefur ekki samið við um viðurkenningu á menntun og hæfi til að starfa sem heilbrigðisstarfsmaður hér á landi gilda sérstakar reglur í reglugerð um meðferð umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 frá umsækjendum frá ríkjum sem íslenska ríkið hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, nr. 483/2023.

Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi ljósmóður frá Sameinaða konungsríkinu Stóra-Bretlandi og Norður-Írlandi fer samkvæmt 12. kafla fríverslunarsamnings konungsríkisins við EFTA-ríkin innan EES.

3. gr.

4. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo, ásamt fyrirsögn:

Umsókn og umsagnir.

Umsókn um starfsleyfi skal senda embætti landlæknis.

Um gjaldtöku fyrir veitingu starfsleyfis fer skv. 14. gr.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar námsbrautar í ljósmóðurfræði við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands um það hvort umsækjandi uppfyllir skilyrði um menntun skv. 3. gr. fyrir veitingu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

4. gr.

6. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo, ásamt fyrirsögn:

Skilyrði fyrir sérfræðileyfi.

Sérfræðileyfi má veita á klínískum sérsviðum í ljósmóðurfræði skv. 1. mgr. 7. gr. Skilyrði er að sérfræðinám umsækjanda sé skilgreint innan þess sérsviðs sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til og fari fram í samstarfi viðurkennds háskóla og klínískra kennslu stofnana. Viðkomandi sérsvið skal standa á traustum fræðilegum grunni og eiga sér samsvörun á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi.

Með klínískum sérsviðum er átt við svið þar sem störf fela í sér bein samskipti við sjúklinga, sem og forvarnir og ljósmóðurfræðilega greiningu og meðferð.

Til að ljósmóðir geti átt rétt á að hljóta sérfræðileyfi skv. 5. gr. skal hún einnig uppfylla eftirtaldar kröfur:

  1. Hún skal hafa lokið meistaranámi í ljósmóðurfræði og hafa starfsleyfi sem ljósmóðir hér á landi skv. 2. gr.
  2. Til viðbótar við meistaranám í ljósmóðurfræði skal hún hafa lokið skipulögðu sérfræðinámi á því sérsviði sem umsókn um sérfræðileyfi tekur til og inniheldur a.m.k. 30 bóklegar ECTS einingar á meistara- eða doktorsstigi við háskóla sem er viðurkenndur af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og eftir atvikum í því ríki sem námið fór fram.
  3. Að loknu sérfræðinámi skv. 2. tölulið skal hún hafa starfað undir leiðsögn sérfræðiljósmóður á sérsviðinu. Leiðsagnartímabilið skal vera að lágmarki tvö ár miðað við fullt starf. Sé starfshlutfall lægra, lengist starfstíminn sem því nemur. Gerður skal samningur um sérfræðileiðsögnina og hann undirritaður af ljósmæðrunum og faglegum stjórnendum á þeim heilbrigðisstofnunum sem þær starfa. Í samningum skal kveðið á um skipulag reglulegrar handleiðslu og fleira er varðar gæði handleiðslunnar.

Til frádráttar skilyrðum samkvæmt 3. tölulið 3. mgr. geta komið allt að tólf mánuðir í fullu starfi ef viðkomandi hefur starfað samhliða doktorsnámi á viðkomandi sérsviði.

Heimilt er að veita sérfræðileyfi þeim sem lokið hafa sambærilegri menntun, sbr. 2. tölulið 3. mgr., frá menntastofnun í öðru ríki, sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað og sambærilegri klínískri þjálfun undir leiðsögn, sbr. 3. tölulið 3. mgr. Um umsóknir ríkisborgara frá öðrum EES-ríkjum eða Sviss gildir einnig reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum eða Sviss til að starfa hér á landi, nr. 510/2020. Um umsóknir ríkisborgara ríkja sem íslenska ríkið hefur ekki samið við um viðurkenningu á menntun og hæfi til að starfa sem heilbrigðisstarfsmaður hér á landi gilda einnig sérstakar reglur í reglugerð um meðferð umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 frá umsækjendum frá ríkjum sem íslenska ríkið hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, nr. 483/2023 .

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðið „hjúkrunarfræðideild“ í 2. mgr. fellur brott og í stað orðsins „heilbrigðisvísindasviðs“ kemur: heilbrigðisvísindasvið.
  2. Ný málsgrein bætist við ákvæðið, svohljóðandi:
    Um gjaldtöku fyrir veitingu sérfræðileyfis fer skv. 14. gr.

6. gr.

13. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

7. gr.

Í stað orðanna „gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012“ í 14. gr. reglugerðarinnar kemur: gjaldtöku embættis landlæknis vegna afgreiðslu umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 429/2025.

8. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 22. október 2026.

Alma D. Möller.

Sigurður Kári Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 11. nóvember 2026

Tengd mál