Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

21. nóvember 2025

Útgáfudagur

27. nóvember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 31/2025

21. nóvember 2025

AUGLÝSING

um innleiðingu á breytingum á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerðir öðlaðist gildi hér á landi með reglugerð nr. 1223/2025 um (64.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2220 frá 3. nóvember 2025 um breytingu á XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færsluna fyrir Norður-Makedóníu í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af görnum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 1 með auglýsingu þessari.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2265 frá 5. nóvember 2025 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 2 með auglýsingu þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. nóvember 2025.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Svava Pétursdóttir.

C deild — Útgáfudagur: 27. nóvember 2025

Tengd mál