Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Múlaþing

Málaflokkur

Umferðarmál, Múlaþing

Undirritunardagur

13. júní 2025

Útgáfudagur

19. júní 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 661/2025

13. júní 2025

REGLUR

um stöðureiti og gjaldtöku við áfangastaðinn Hafnarhólma á Borgarfirði eystri.

1. gr.

Reglur þessar gilda um notkun og gjaldtöku fyrir stöðureiti við Hafnarhólma á Borgarfirði eystri og eru settar með stoð í 2. og 3. mgr. 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Reglurnar hafa fengið samþykki lögreglustjórans á Austurlandi skv. 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga.

2. gr.

Öllum er skylt að greiða fyrir afnot af stöðureitum við Hafnarhólma á gjaldskyldutíma. Gjaldskyldutími er heimilaður allan sólarhringinn allt árið um kring.

3. gr.

Gjaldskrá fyrir bifreiðastöður við Hafnarhólma er sem hér segir:

Bifhjól, 400 kr.

Fólksbifreið, 5 manna eða færri, 1.000 kr.

Fólksbifreið, 6-9 manna, 1.500 kr.

Sumarpassi fyrir fólksbifreið, 2.500 kr.

Hópferðabílar fyrir 10-19 manns, 2.200 kr.

Hópferðabílar fyrir 20-32 manns, 5.000 kr.

Hópferðabílar fyrir 33 manns eða fleiri, 8.500 kr.

Greiðsla samkvæmt framangreindri gjaldskrá veitir heimild til notkunar á stöðureit við Hafnarhólma í allt að fimm klukkustundir í senn.

Óheimilt er að nota gjaldskyldan stöðureit án heimildar samkvæmt framangreindu.

Sé gjaldskyldur stöðureitur notaður án heimildar á gjaldskyldutíma, skal leggja á aukastöðugjald fyrir notkunina í samræmi við f-lið 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

4. gr.

Sveitarstjórn annast innheimtu stöðugjalda og skal þeim varið til að standa straum af byggingarkostnaði, viðhaldi og rekstri stöðureita, þ.m.t. launum varða og kostnaði við uppbyggingu, viðhald og rekstur þjónustu sem veitt er í tengslum við notkun stöðureita, svo sem salernisaðstöðu og gerð og viðhaldi göngustíga og tenginga við önnur mannvirki áfangastaðarins.

5. gr.

Reglur þessar eru settar skv. 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og öðlast þegar gildi.

Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 11. júní 2025.

Múlaþingi 13. júní 2025.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri

B deild - Útgáfud.: 19. júní 2025

Tengd mál