Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjavík
Undirritunardagur
10. september 2026
Útgáfudagur
11. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 978/2026
10. september 2026
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.
Teigahverfi – Reykjavegur, Hofteigur, Kirkjuteigur – USK26040131.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, 20. ágúst 2026, breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Reykjavegar, Hofteigs og Kirkjuteigs. Í breytingunni felst að Hofteigur og Kirkjuteigur verða botngötur og verður lokað á akandi umferð um þær inn á Reykjaveg, lóð Laugarnesskóla minnkar óverulega til að koma fyrir snúningssvæði við enda Hofteigs, snúningssvæði verður komið fyrir við enda Kirkjuteigs og verða núverandi langstæði beggja megin götunnar felld burt og þrenging verður á Reykjavegi þar sem núverandi tenging er við Kirkjuteig. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 10. september 2026.
Brynjar Þór Jónasson.
B deild — Útgáfudagur: 11. september 2026