Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Heilbrigðisráðuneytið
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sóttvarnir
Undirritunardagur
11. ágúst 2021
Útgáfudagur
11. ágúst 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 915/2021
11. ágúst 2021
REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 878/2021.
1. gr.
Í stað orðanna „13. ágúst 2021“ í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 27. ágúst 2021.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
- Á undan orðunum „allri annarri starfsemi“ í 1. mgr. kemur: skólum og
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Nemendur grunnskóla eru þó undanþegnir nálægðartakmörkun.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Kennurum og nemendum fæddum 2005 og fyrr er heimilt í skólum að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skólastofu.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi frá og með 14. ágúst 2021.
Heilbrigðisráðuneytinu, 11. ágúst 2021.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
Rögnvaldur G. Gunnarsson.
B deild - Útgáfud.: 11. ágúst 2021