Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

12. júní 2025

Útgáfudagur

27. júní 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 715/2025

12. júní 2025

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 605/2006 um starfsskyldur kennara og sérfræðinga við Háskóla Íslands.

1. gr.

Heiti reglnanna skal vera: Reglur um starfsskyldur akademísks starfsfólks við Háskóla Íslands.

2. gr.

2. málsl. 1. gr. reglnanna orðast svo: Starfsskyldur adademísks starfsfólks sem eingöngu er ráðið til vísinda- og fræðastarfa skiptist í rannsóknir, stjórnun og önnur störf.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á f-lið 3.1. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðanna „sérfræðinga, fræðimanna og vísindamanna“ í 1. málsl. koma orðin: rannsókna­lektora, rannsóknadósenta og rannsóknaprófessora.
  2. Í stað orðanna „sérfræðinga, fræðimanna og vísindamanna“ í 2. málsl. kemur orðið: þeirra.

4. gr.

Í stað orðanna „sérfræðinga, fræðimenn og vísindamenn“ í 1. málsl. 4. gr. reglnanna koma orðin: rannsóknalektora, rannsóknadósenta og rannsóknaprófessora.

5. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við heimild í 1. og 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast gildi 1. júlí 2025.

Háskóla Íslands, 12. júní 2025.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025

Tengd mál