Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing ytra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
18. maí 2026
Útgáfudagur
2. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 622/2026
18. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.
Hvammur, vinnubúðir, óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 13. maí 2026 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Hvamm, vinnubúðir. Helstu breytingar eru þær að byggingarmagn eykst úr 6.000 m² í 12.000 m² og að starfsmannafjöldi fer úr 400 í 500 manns á framkvæmdatíma. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hellu, 18. maí 2026.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 2. júní 2026