Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Ölfus
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus
Undirritunardagur
11. ágúst 2026
Útgáfudagur
25. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 914/2026
11. ágúst 2026
AUGLÝSING
um skipulag í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Þorlákshafnarvegur – vegtengingar – breyting á deiliskipulagi.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 31. maí 2026 breytingu á deiliskipulagi Þorlákshafnarvegar. Lagt er fram deiliskipulag fyrir Þorlákshafnarveg milli Hveragerðis og gatnamóta Þrengslavegar þar sem fækkað verður vegtengingum á veginum og lagðir verða hliðarvegir þar sem við á. Einnig er gert ráð fyrir að lagður sé göngu-/hjólastígur norðanmegin við veginn.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Fiskalón – breyting á vegstæði – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi Fiskalóns. Innan skipulagsmarka er lóð Fiskalóns, sem er í tveimur skikum, auk lóðanna Bakrangs og Fiskalóns B. Milli lóða innan skipulagsmarka liggur Þorlákshafnarvegur þar sem skipulagsmörkum verður breytt og helgunarsvæði vega og jarðstrengs afmörkuð. Breytingin er gerð samhliða gerð nýs deiliskipulags fyrir Þorlákshafnarveg til að samræma deiliskipulagsmörk.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Vötn – breyting á skipulagsmörkum – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi Vatna. Innan skipulagsmarka er lóð sem ber núna staðfangið Laut sem liggur neðan Hveragerðisbæjar. Með breytingunni eru skipulagsmörk færð inn fyrir lóð Lautar, en engar breytingar á byggingarheimildum til framkvæmda innan skipulagsmarka. Breytingin er gerð samhliða gerð nýs deiliskipulags fyrir Þorlákshafnarveg til að samræma deiliskipulagsmörk.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Bakkahlíð 3 – breyting á skipulagsmörkum – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi Bakkahlíðar 3. Með breytingunni er skipulagsmörkum breytt og þau færð að lóðamörkum. Breytingin er gerð samhliða gerð nýs deiliskipulags fyrir Þorlákshafnarveg til að samræma deiliskipulagsmörk.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Riftún – breyting á skipulagsmörkum – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi Riftúns. Með breytingunni er skipulagsmörkum breytt og þau færð að lóðamörkum. Breytingin er gerð samhliða gerð nýs deiliskipulags fyrir Þorlákshafnarveg til að samræma deiliskipulagsmörk.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Þóroddsstaðir 2 – breyting á skipulagsmörkum – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi Þóroddsstaða 2 A og B. Með breytingunni er skipulagsmörkum breytt og þau færð að lóðamörkum Þóroddsstaða 2 lóðar B og Skálafells. Breytingin er gerð samhliða gerð nýs deiliskipulags fyrir Þorlákshafnarveg til að samræma deiliskipulagsmörk.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Vellir – tengivirki – nýtt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026 nýtt deiliskipulag á tveimur landspildum austan Varmár í Ölfusi, Vellir spennistöð og Vellir. Áformað er að reisa nýtt bráðabirgða tengivirki við hlið tengivirkisins Hveragerði á Völlum í Ölfusi. Markmiðið er að auka flutningsgetu raforku að svæðinu og jafnframt tryggja að umhverfisraski og neikvæðum áhrifum verði haldið í lágmarki.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Mýrarsel 9 – 5 íbúðarlóðir – nýtt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026 nýtt deiliskipulag á Mýrarseli 9. Breytingin felst í uppskiptingu lóðar þar sem áður var landbúnaðarsvæði en verður breytt í íbúðarlóðir fyrir 5 einbýlishús.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Árbær 4 – dýraspítali og verslunarlóðir – nýtt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026 nýtt deiliskipulag fyrir dýraspítala og aðra verslunar- og þjónustustarfsemi á Árbæjarsvæðinu við Selfoss. Markmiðið er að skapa bætta þjónustu í kringum nýjan dýraspítala og koma til móts við þarfir atvinnulífs með uppbyggingu atvinnusvæða í nálægð við dreifbýlið í kringum Selfoss.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Gljúfurárholt, land 10 – breyttir byggingarskilmálar – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 28. maí 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Stað. Breytingin felur í sér örlitla breytingu á byggingarreit.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Óseyrartangi – stækkun lóðar hótels – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 7. ágúst 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi vegna hótels á Óseyrartanga. Breytingin felur í sér stækkun lóðar hótels um 1 ha.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Þorlákshöfn, 11. ágúst 2026.
Sigurður Steinar Ásgeirsson, sviðsstjóri skipulags- og lögfræðisviðs.
B deild — Útgáfudagur: 25. ágúst 2026