Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Vestmannaeyjabær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Vestmannaeyjar
Undirritunardagur
11. febrúar 2026
Útgáfudagur
2. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 205/2026
11. febrúar 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Vestmannaeyjabæ.
Deiliskipulag við Hraunveg – viðbyggingar við Kleifahraun 14A-B.
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á 427. fundi sínum 22. september 2025 að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi við Hraunveg sem felur í sér nýjar viðbyggingar við Kleifahraun 14A-B skv 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust vegna málsins. Á 19. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. febrúar sl. var skipulagsfulltrúa falið að auglýsa breytt deiliskipulagi í B-deild Stjórnartíðinda.
Breytingin felur í sér tvo nýja byggingarreiti við suðurhliðar Kleifahauns 14A-B. Stækkun hvors byggingarreitar er 26,25 m² en samanlagðar byggingarheimildir á lóð fara úr 260 m² í 296 m². Hámarkshæð er 5 m yfir kóta aðalhæðar. Nýtingarhlutfall er aukið úr 0,35 í 0,4.
Annað í skipulagi er óbreytt.
Deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð skv. ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Vestmannaeyjum, 11. febrúar 2026.
F.h. Vestmannaeyjabæjar,
Dagný Hauksdóttir, skipulags- og umhverfisfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 2. mars 2026