Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ásahreppur
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
19. nóvember 2025
Útgáfudagur
8. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1316/2025
19. nóvember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir hreinsun rotþróa í Ásahreppi.
1. gr.
Ásahreppur innheimtir gjald fyrir hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu samkvæmt gjaldskrá þessari, sbr. samþykkt um fráveitur í Ásahreppi nr. 865/2022.
2. gr.
Sveitarfélagið innheimtir árlega rotþróargjald til niðurjöfnunar á kostnaði við tæmingu rotþróa, skv. 11. gr. samþykktar um fráveitur í Ásahreppi. Árlegt rotþróargjald þar sem tæming á sér stað fimmta hvert ár skal vera eftirfarandi:
| Rotþró 0–6.000 lítra | 8.100 kr. | |
| Rotþró 6.001 lítra og stærri | 1.615 kr. pr./m³ |
Árlegt rotþróargjald þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár skal vera eftirfarandi:
| Rotþró 0–6.000 lítra | 13.500 kr. | |
| Rotþró 6.001 lítra og stærri | 2.690 kr. pr./m³ |
Árlegt rotþróargjald þar sem tæming á sér stað annað hvert ár skal vera eftirfarandi:
| Rotþró 0–6.000 lítra | 20.250 kr. | |
| Rotþró 6.001 lítra og stærri | 4.035 kr. pr./m³ |
Árlegt rotþróargjald þar sem tæming á sér stað á hverju ári skal vera eftirfarandi:
| Rotþró 0–6.000 lítra | 40.500 kr. | |
| Rotþró 6.001 lítra og stærri | 8.075 kr. pr./m³ |
3. gr.
Fyrir aukahreinsun, að beiðni eiganda, skal greiða sérstaklega samkvæmt gjaldskrá losunar- og móttökuaðila.
4. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var af hreppsnefnd Ásahrepps 19. nóvember 2025, er sett með vísan til 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, 11. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og á grunni 11. gr. samþykktar um fráveitur í Ásahreppi nr. 865/2022. Gjaldskráin gildir frá birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Ásahreppi, 19. nóvember 2025.
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 8. desember 2025