Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

19. febrúar 2026

Útgáfudagur

26. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 187/2026

19. febrúar 2026

REGLUR

um breytingu á reglum um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands, nr. 331/2022.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglnanna:

  1. Á eftir orðinu „félagsráðgjafardeild“ í 1. málsl. 1. mgr. koma orðin: kennsluárið 2027-2028.
  2. Ný málsgrein, sem verður 1. mgr. bætist við, svohljóðandi:
    Til að hefja nám við félagsráðgjafardeild kennsluárið 2026-2027 skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Önnur lokapróf af þriðja hæfniþrepi skulu teljast sambærileg stúdentsprófi, hafi umsækjandi lokið 20 einingum í íslensku og 20 einingum í ensku (þar af 10 einingum á þriðja hæfniþrepi í hvorri grein), 5 einingum í stærðfræði (a.m.k. á öðru hæfniþrepi) og 5 einingum í raungreinum eða samfélagsgreinum.
  3. Núverandi 1. mgr. verður 2. mgr., 2. mgr. verður 3. mgr. og 3. mgr. verður 4. mgr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðanna „í líffræði“ í 1. og 3. málsl. 1. mgr. koma orðin: við deildina.
  2. 3. málsl. 4. mgr. fellur brott.

3. gr. 

2. málsl. 2. mgr. 27. gr. reglnanna orðast svo: Þar af skulu vera minnst 10 einingar í eðlisfræði og 10 einingar í efnafræði.

4. gr. 

Reglur þessar eru settar af háskólaráði Háskóla Íslands með heimild í 18. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, sbr. 47. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009, og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 19. febrúar 2026.

Silja Bára R. Ómarsdóttir.

Magnús Jökull Sigurjónsson.

B deild — Útgáfudagur: 26. febrúar 2026

Tengd mál