Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. júní 2025
Útgáfudagur
27. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 709/2025
12. júní 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 501/2011 um meistaranám við menntavísindasvið Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:
- Á eftir orðunum „Umsókn um meistaranám skal fylgja:“ í 1. mgr. koma orðin: Deildir ákveða hvaða gögn skulu fylgja umsókn um meistaranám.
- Töluliðir a–d í 1. mgr. falla brott.
- 2. og 3. mgr. falla brott.
2. gr.
Í stað „BS-prófi“ í 1. málsl. 7. gr. reglnanna kemur: BS-gráðu.
3. gr.
Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 2. málsl. 11. gr. reglnanna kemur orðið: meistaragráðu.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „Meistaraprófsnefndir“ í heiti greinar kemur orðið: Meistaranámsnefndir.
- Í stað orðsins „meistaraprófsnefnd“ í 1., 2., 3., 4., 5., 6. og 8. málsl. kemur orðið: meistaranámsnefnd.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „meistarapróf“ í heiti greinarinnar kemur orðið: meistaragráða.
- Í stað orðsins „meistaraprófsnefnd“ í 2. málsl. kemur orðið: meistaranámsnefnd.
- Í stað orðsins „meistaraprófs“ í 2. málsl. kemur orðið: meistaragráðu.
- Í stað orðsins „meistaraprófsvörn“ í 4. málsl. kemur orðið: vörn.
6. gr.
Í stað orðsins „Meistaraprófsritgerð“ í 1. málsl. 14. gr. reglnanna kemur orðið: Meistararitgerð.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „Meistarapróf“ í 1. málsl. kemur orðið: Meistaragráða.
- Orðin „1. gr. þessara reglna og“ falla brott.
- Á eftir 1. málsl. bætist við nýr málsliður svohljóðandi:
Meistarapróf samkvæmt þessum reglum veitir rétt til lærdómstitilsins Master of Teaching (MT) skv. 55. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.
8. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við reglur nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. júní 2025.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025