Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sveitarstjórnarmál, Rangárþing ytra
Undirritunardagur
17. september 2026
Útgáfudagur
1. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1049/2026
17. september 2026
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra, nr. 656/2023.
1. gr.
2. mgr. 33. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo:
Byggðarráði er heimilt að afgreiða, án staðfestingar sveitarstjórnar, fundargerðir skipulagsnefndar. Þannig hefur byggðarráð heimild til fullnaðarafgreiðslu allra mála skv. skipulagslögum, nr. 123/2010, sbr. heimild í 6. gr. laganna. Byggðarráð hefur þó ekki fullnaðarafgreiðsluvald ef mál lúta að breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Þrátt fyrir framangreint er byggðaráði ávallt heimilt að vísa máli til umfjöllunar og ákvörðunartöku í sveitarstjórn. Þá ber að vísa máli til sveitarstjórnar ef öll atkvæði eru ekki samhljóða varðandi afgreiðslu máls sem og ef einn fulltrúi ráðsins gerir kröfu um það.
2. gr.
2. mgr. 39. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo:
Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu skrá fundargerðir með rafrænum hætti í fundarkerfi sveitarfélagsins. Starfsmaður nefndar eða ráðs samkvæmt erindisbréfi ritar að jafnaði fundargerðir viðkomandi nefndar eða ráðs. Þó getur ráð eða nefnd ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar/ráðs. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 16. gr. samþykktar þessarar.
3. gr.
3. tl. 1. mgr. 47. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Skipulagsnefnd. Kjósa skal fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í skipulagsnefnd. Nefndin fer með skipulagsmál samkvæmt lögum og reglugerðum á því sviði, sbr. einkum skipulagslög, nr. 123/2010, og skipulagsreglugerð, nr. 90/2013, og eftirlit með stjórnsýslu byggingarfulltrúa skv. 7. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010. Nefndin fer með hlutverk skipulagsnefndar skv. 6. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010. Lóðaumsóknir skulu lagðar fyrir skipulagsnefnd til fullnaðarafgreiðslu í samræmi við reglur um lóðaúthlutanir sem sveitarstjórn setur, enda sé viðkomandi lóð í samræmi við gildandi aðal- og deiliskipulag viðkomandi svæðis. Leggja ber aðrar umsóknir um lóðir og vilyrði fyrir lóðum fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu. Umsækjandi getur óskað eftir því við sveitarstjórn að ákvörðun vegna lóðarumsóknar verði endurupptekin og skal þá sveitarstjórn taka ákvörðun um endurupptöku máls. Ef endurupptaka er samþykkt þá tekur sveitarstjórn málið til nýrrar afgreiðslu.
4. gr.
6. tl. 1. mgr. 47. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Hálendis- og umhverfisnefnd. Kjósa skal fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í hálendis- og umhverfisnefnd. Nefndin fer með hálendis- og umhverfismál samkvæmt lögum og reglugerðum á því sviði, m.a. skv. lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, og lögum um landgræðslu, nr. 155/2018. Nefndin fer með hlutverk náttúruverndarnefndar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.
5. gr.
Við 1. mgr. 47. gr. samþykktarinnar bætist nýr töluliður, og uppfærast eftirkomandi töluliðir til samræmis við það. Orðast nýr 7. tl. svo, ásamt fyrirsögn:
Innviðanefnd. Kjósa skal fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í innviðanefnd. Nefndin fer með umferðaröryggis- og samgöngumál, þ.m.t. sértæka fræðsluskyldu sveitarfélagsins skv. 3. mgr. 112. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019. Nefndin fer einnig með fjarskiptamál, þ.m.t. málefni Rangárljóss, sbr. lög nr. 70/2022 um fjarskipti.
6. gr.
9. tl. 1. mgr. 47. gr. samþykktarinnar, áður 8. tl., breytist og orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Framkvæmda- og eignanefnd. Kjósa skal þrjá sveitarstjórnarmenn sem aðalmenn og jafnmarga til vara í framkvæmda- og eignanefnd. Nefndin hefur umsjón með viðhaldi og framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins og er ráðgefandi með forgangsröðun þeirra verkefna. Nefndin fer með málefni fráveitu í samræmi við lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009. Nefndin fer jafnframt með málefni þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins.
7. gr.
11. tl. 1. mgr. 47. gr. samþykktarinnar, áður 10. tl., fellur brott, og uppfærast eftirkomandi töluliðir til samræmis við það.
8. gr.
Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast gildi.
Innviðaráðuneytinu, 17. september 2026.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Ólöf Sunna Jónsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 1. október 2026