Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

10. júní 2026

Útgáfudagur

25. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 718/2026

10. júní 2026

REGLUR

um breytingu á reglum fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 47. gr. reglnanna:

  1. Á eftir 3. mgr. bætist við ný málsgrein, 4. mgr., svohljóðandi: Deildum er heimilt að fara fram á að nemendur með próf frá erlendum skólum, öðrum en á Norðurlöndum, sem hljóta inngöngu í grunnnám sem kennt er á íslensku, hafi staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Geri deildir þessa kröfu skal það koma fram með skýrum hætti í kennsluskrá og í aðgangskröfum viðkomandi námsleiða, sem og í öðru upplýsingaefni um inntökuskilyrði í námið.
  2. Núverandi 4. mgr. verður 5. mgr., 5. mgr. verður 6. mgr., 6. mgr. verður 7. mgr., 7. mgr. verður 8. mgr., 8. mgr. verður 9. mgr., 9. mgr. verður 10. mgr. og 10. mgr. verður 11. mgr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. kafla 69. gr. reglnanna:

  1. Á eftir 1. mgr. bætist við ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi: Deildum er heimilt að fara fram á að umsækjendur um nám á meistarastigi sem hvorki hafa lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku eða öðru Norðurlandamáli skuli hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Geri deildir þessa kröfu skal það koma fram með skýrum hætti í kennsluskrá og í aðgangskröfum viðkomandi námsleiða, sem og í öðru upplýsingaefni um inntökuskilyrði í námið.
  2. Núverandi 2. mgr. verður 3. mgr.

3. gr. 

Reglur þessar eru settar á grundvelli laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 10. júní 2026.

Silja Bára R. Ómarsdóttir.

Magnús Jökull Sigurjónsson.

B deild — Útgáfudagur: 25. júní 2026

Tengd mál