Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
21. apríl 2026
Útgáfudagur
7. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 451/2026
21. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna frístundabyggðar F25 við Suðurbakka.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun staðfesti 21. apríl 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032, sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. september 2026.
Í breytingunni felst að frístundabyggð F25 stækkar um 6 ha eða sem nemur lóðum við Suðurbakka nr. 13, 15 og 17. Landbúnaðarsvæði L2 minnkar samhliða.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 21. apríl 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 7. maí 2026