Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Menningarminjar

Undirritunardagur

19. júní 2025

Útgáfudagur

3. júlí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 752/2025

19. júní 2025

AUGLÝSING

um friðlýsingu menningarminja.

Hólavallagarður.

Með vísan til 3. mgr. 18. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákveðið að fenginni tillögu Minjastofnunar Íslands að friðlýsa Hólavallagarð við Suðurgötu í Reykjavík (L101316).

Hólavallagarður er meðal merkustu kirkjugarða landsins og endurspeglar á einstakan hátt skipulagssögu og uppbyggingu kirkjugarða á 19. og 20. öld. Skráð byggingarár garðsins er 1838 og var hann stækkaður í nokkrum áföngum sem hafði áhrif á þróun hans, m.a. skipulag grafa og gatna milli grafaraða. Í Hólavallagarði hefur varðveist eitt merkasta og heillegasta safn af minningarmörkum á Íslandi sem hafa mikið gildi fyrir listasögu, táknfræði og stílgerð. Sýna þau vel þróun stílbrigða, handbragðs og efnisnotkunar frá 1838 til dagsins í dag. Í garðinum er auk þess að finna fjölbreyttan blóma- og trjágróður sem bera sínum samtíma vitni, auk fágætra mosa- og sveppategunda.

Friðlýsingin tekur til Hólavallagarðs í heild; veggjar umhverfis garðinn, heildarskipulags hans, klukknaports, minningarmarka og ásýndar garðsins. Garðurinn afmarkast af Suðurgötu til austurs, göngustíg samsíða Hringbraut til suðurs, Ljósvallagötu til vesturs og Hólatorgi og Kirkjugarðsstíg til norðurs. Svæðið sem friðlýsingin tekur til er um 3 ha að stærð og afmörkun miðast við lóðarmörk eða ytra borð garðveggja. Garðinum fylgir starfsmannahús/geymsla að Ljósvallagötu 1a (F2272172) og er fasteign þessi hluti friðlýsingarinnar. Ákvæði í 22. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar, sem kveða á um 100 metra friðhelgað svæði út frá ystu sýnilegu mörkum friðlýstra minja, eiga ekki við um Hólavallagarð.

Friðlýsing mun ekki hafa áhrif á umhirðu og daglegan rekstur kirkjugarðsins og áfram verður heimilt að jarðsetja duftker og halda við leiðum í samráði við Kirkjugarða Reykjavíkur, sbr. lög nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu. Kostnaður við umhirðu og viðhald minningarmerkja og leiða fer eftir sömu lögum.

Hólavallagarður nýtur hverfisverndar samkvæmt gildandi deiliskipulagi frá 2003 með vísan í markmið skipulagsreglugerðar um að varðveita einstakt menningarsögulegt yfirbragð garðsins vegna minningarmarka og ræktunarsögu.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. júní 2025.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Björn Helgi Barkarson.

B deild — Útgáfudagur: 3. júlí 2025

Tengd mál