Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
21. desember 2018
Útgáfudagur
28. desember 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1264/2018
21. desember 2018
AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2019.
Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.
Tekjuskattshlutfall á árinu 2019 verður 22,5% af tekjuskattsstofni að 11.125.045 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 11.125.046 kr. Meðalútsvar á árinu 2019 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2019 verður því 36,94% af tekjuskattsstofni að 11.125.045 kr. og 46,24% af tekjuskattsstofni frá 11.125.046 kr.
Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2019 vera 677.358 krónur, eða 56.447 krónur að meðaltali á mánuði.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. desember 2018.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
B deild - Útgáfud.: 28. desember 2018