Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Undirritunardagur

13. mars 2025

Útgáfudagur

18. mars 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 8/2025

13. mars 2025

AUGLÝSING

um birtingu á tilteknum ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar og ESB-gerð á sviði fjármálaþjónustu sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn.

Eftirtaldar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar fela í sér að tilteknar reglugerðir á sviði fjármálaþjónustu eru teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 31/1993 þar sem samningurinn var upphaflega birtur:

  1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 40/2025 frá 20. febrúar 2025, sjá fylgiskjal nr. 1 með auglýsingu þessari.
  2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 41/2025 frá 20. febrúar 2025, sjá fylgiskjal nr. 2 með auglýsingu þessari. Tekin er upp reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937, með aðlögunum, sjá fylgiskjal nr. 3 með auglýsingu þessari.

Þær ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar og reglugerð sem að framan greinir eru birtar sem fylgiskjöl með auglýsingu þessari. Birtingin er liður í undirbúningi þess að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fyrir Alþingi lagafrumvörp til innleiðingar á viðkomandi reglugerðum í íslenskan rétt, með þeim aðlögunum sem gerðar hafa verið við upptöku þeirra í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Sömu ákvarðanir og reglugerð verða jafnframt á síðara stigi birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 13. mars 2025.

F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,

Guðrún Þorleifsdóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 18. mars 2025

Tengd mál