Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
21. apríl 2026
Útgáfudagur
7. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 452/2026
21. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna fjölgunar íbúða á Skógum.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 21. apríl 2026 breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2026.
Í breytingunni felst fjölgun íbúða innan íbúðarbyggðar ÍB23 í þéttbýlinu á Skógum úr 7 í 16. Íbúðir verða áfram heimilaðar innan verslunar- og þjónustusvæðis VÞ29. Afmörkun svæðanna helst óbreytt.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 21. apríl 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 7. maí 2026