Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið (2019-2025)

Málaflokkur

Öryggismál, Fjarskipti

Undirritunardagur

17. nóvember 2023

Útgáfudagur

5. desember 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1331/2023

17. nóvember 2023

AUGLÝSING

um skrá yfir rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu.

1. gr.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra heldur opinbera skrá yfir rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu hér á landi að fengnum tillögum sem Fjarskiptastofa hefur undirbúið í samráði við eftirlitsstjórnvöld, hvert á sínu sviði. Skráin er er birt í viðauka með auglýsingu þessari og uppfærð eftir því sem tilefni er til og á a.m.k. tveggja ára fresti.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 4. mgr. 3. gr. laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, sbr. reglugerð um öryggi net- og upplýsingakerfa rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu, nr. 866/2020 og öðlast þegar gildi.

Frá sama tíma fellur úr gildi auglýsing um skrá yfir rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu frá 7. janúar 2022, nr. 67/2022.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. nóvember 2023.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Ásdís Halla Bragadóttir.

VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 5. desember 2023

Tengd mál