Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ísafjarðarbær
Málaflokkur
Byggingarmál, Mannvirki, Ísafjarðarbær
Undirritunardagur
30. september 2025
Útgáfudagur
14. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1172/2025
30. september 2025
GJALDSKRÁ
byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar.
Fyrir þjónustu sem byggingarfulltrúi Ísafjarðarbæjar innir af hendi skal innheimta gjöld sem hér segir:
1. gr. Byggingarleyfisgjald.
Innheimt skal eftirfarandi byggingarleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem byggingarleyfi er gefið út fyrir, sbr. 51. gr. laga nr. 160/2010, um mannvirki. Innifalið í gjaldinu er lögboðin meðferð byggingarleyfisskyldra erinda, lóðarblöð, yfirferð teikninga, útsetning húss og reglubundið eftirlit eftir því sem við á.
| Flokkur A: Íbúðarhúsnæði: | án vsk. |
| Einbýlishús | 252.110 kr. |
| Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús, gjald á hverja íbúð | 214.310 kr. |
| Fjölbýlishús, gjald á hverja íbúð | 126.060 kr. |
| Frístundahús | 126.060 kr. |
| Flokkur B: Atvinnu-, þjónustu- og stofnanahúsnæði: | |
| Gólfflötur allt að 500 fermetrar | 252.110 kr. |
| Gólfflötur á bilinu 500-1.000 fermetrar | 504.220 kr. |
| Gólfflötur yfir 1.000 fermetrum | 756.330 kr. |
| Flokkur C: Önnur hús, hvers konar viðbyggingar, bílageymslu- og gripahús: | |
| Nýbygging eða viðbygging allt að 40 fermetrar | 100.840 kr. |
| Nýbygging eða viðbygging frá 40-100 fermetrum | 151.270 kr. |
| Nýbygging eða viðbygging yfir 100 fermetrum | 252.110 kr. |
| Flokkur D: Annað: | |
| Minni háttar breytingar á útliti, innra skipulagi, klæðningu utanhúss o.þ.h. | 50.420 kr. |
| Meiri háttar breytingar á innra skipulagi húsnæðis, s.s. veggjum, lögnum o.þ.h. | 126.060 kr. |
2. gr. Leyfisgjöld.
| Stöðuleyfi hjólhýsa, báta og annarra muna skv. 1. gr. reglna Ísafjarðarbæjar um útgáfu stöðuleyfa (árgjald) | 32.060 kr. |
| Stöðuleyfi gáma (árgjald) | 58.440 kr. |
| Breyting á lóðarleigusamningi að beiðni lóðahafa | 20.370 kr. |
| Breyting á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs | 28.740 kr. |
| Afgreiðslugjald byggingarfulltrúa | 14.970 kr. |
| Úttekt vegna meistaraskipta | 15.270 kr. |
| Úttekt vegna byggingarstjóraskipta | 62.860 kr. |
| Lóðagjald | 44.910 kr. |
| Yfirferð aðaluppdrátta | 39.970 kr. |
| Tímavinnugjald við gerð úttekta vegna meistara- og byggingarstjóraskipta, sbr. 4. gr. gjaldskrárinnar | 23.810 kr. |
| Endurnýjun byggingarleyfis | 14.970 kr. |
| Leyfi til niðurrifs mannvirkja | 38.170 kr. |
| Breyting á skráningu, sbr. 5. gr. gjaldskrárinnar | 38.920 kr. |
3. gr. Vottorð.
| Byggingarstig húsa | 36.870 kr. |
| Afgreiðsla skráningartöflu | 40.080 kr. |
| Afgreiðsla eignaskiptayfirlýsinga, gjald á eignarhlut Af viðameiri eignaskiptayfirlýsingum er heimilt að innheimta tímavinnugjald af þeirri vinnu og kostnaði sem lagt er út í við gerð eignaskiptayfirlýsinga. |
skv. reikningi |
4. gr. Tímavinnugjald byggingarfulltrúa.
Af viðameiri framkvæmdum er heimilt að innheimta tímavinnugjald af þeirri vinnu sem lagt er út í við gerð úttekta vegna meistara- og byggingarstjóraskipta.
5. gr. Kostnaður skoðunarstofu.
Sé hönnun mannvirkis sérstaklega vandasöm og/eða umfangsmikil getur byggingarfulltrúi við meðferð byggingarleyfisumsóknar ákveðið að skoðunarstofa annist yfirferð hönnunargagna og úttektir á kostnað eiganda vegna framkvæmdar í heild eða að hluta, sbr. ákvæði í gr. 3.3.1 og 3.3.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
6. gr. Samþykkt og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 51. gr. laga nr. 160/2010, um mannvirki.
Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2026 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1241/2024.
Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 30. september 2025.
Ísafirði, 30. september 2025.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 14. nóvember 2025