Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Leigubifreiðar

Undirritunardagur

21. september 2026

Útgáfudagur

22. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1020/2026

21. september 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 324/2023 um leigubifreiðaakstur.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við bætist ný málsgrein sem verður 1. mgr., svohljóðandi, og breytist röð eftirfarandi málsgreina til samræmis við það: Leigubifreið skal auðkennd með sérstöku skráningarmerki í samræmi við reglugerð um skráningu ökutækja.
  2. Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Leyfisskírteinið skal vera staðsett á mælaborði fyrir miðju.

2. gr.

Á eftir 3. gr. reglugerðarinnar koma tvær nýjar greinar, 3. gr. a og 3. gr. b, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:

a. (3. gr. a)

Leyfissvipting.

Hafi umsækjandi verið sviptur leyfi á grundvelli 16. gr. laga um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, skal umsókninni hafnað séu ástæður sviptingarinnar enn fyrir hendi.

Liggi fyrir ákvörðun Neytendastofu eða eftir atvikum úrskurður áfrýjunarnefndar neytendamála, úrskurður kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða úrlausn sambærilegs stjórnvalds sem varðar brot leyfishafa á lögum eða reglugerðum skal hann upplýsa Samgöngustofu þar um. Hafi rekstrarleyfishafi í úrlausn verið talinn brotlegur skal Samgöngustofa leggja mat á hvort einnig sé um að ræða brot gegn 1. mgr. 8. gr. laga um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, þar sem honum ber að tryggja að reksturinn fari fram í samræmi við góða viðskiptahætti. Samgöngustofa skal enn fremur leggja mat á hvort starfsemi leyfishafa er að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti, sbr. 1. mgr. 13. gr. laga um leigubifreiðaakstur, og getur stofnunin hafið sviptingarferli í samræmi við 16. gr. laganna.

b. (3. gr. b)

Framkvæmd eftirlits.

Samgöngustofa skal árlega hafa sérstakt eftirlit, að frumkvæði stofnunarinnar, með nægjanlegum fjölda leyfishafa svo að það geti talist grundvöllur til frekara áhættumiðaðs eftirlits, sbr. 2. mgr.

Samgöngustofa skal koma sér upp áhættumatskerfi þar sem framkvæmd eftirlits er skráð sem og niðurstöður þess. Athugasemdir skulu skráðar og viðkomandi leyfishafa gefin einkunn eftir fjölda og alvarleika athugasemda. Frekara eftirlit skal haft með þeim sem hljóta lakari heildareinkunn, eða eru tengdir þeim aðilum.

Samgöngustofa skal árlega hafa eftirlit með viðurkenndum námskeiðshöldurum, sbr. 4. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar.

Samgöngustofa skal árlega skila ráðherra skýrslu um framkvæmd eftirlits á undangengnu ári.

3. gr.

Við 4. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Próf skulu þreytt án utanaðkomandi aðstoðar. Samgöngustofa viðurkennir og hefur eftirlit með námskeiðshaldara. Beiðni um viðurkenningu skulu fylgja upplýsingar um kennslustað, ábyrgðarmann og gögn um skipulag fyrirhugaðra námskeiða, þar á meðal kennsluáætlun.

4. gr.

Við 5. gr. reglugerðarinnar bætast fjórar nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

Leigubifreiðastöð skal setja og birta hátternisreglur sem gilda skulu um alla þá sem hafa afgreiðslu á viðkomandi stöð. Skulu starfsmenn leigubifreiðastöðvarinnar og leyfishafar sem hafa afgreiðslu á stöðinni staðfesta þær skriflega við gildistöku þeirra eða eftir því sem við á þegar þeir hefja störf eða akstur í afgreiðslu stöðvarinnar.

Í hátternisreglum leigubifreiðastöðvar skal að minnsta kosti fjallað um:

  1. Markmið og gildissvið reglnanna.
  2. Fagmennsku og framkomu starfsmanna leigubifreiðastöðvarinnar og leyfishafa í afgreiðslu hennar.
  3. Öryggi í akstri og aðbúnað.
  4. Viðskiptahætti, verð og greiðslur.
  5. Persónuvernd, trúnað og meðferð gagna.
  6. Jafnræði og þjónustu við viðkvæma hópa.
  7. Kvartanir og viðurlög.
  8. Innleiðingu reglnanna, innra eftirlit og eftirlit með framkvæmd reglnanna.
  9. Aðgengi leyfishafa að stöðinni.
  10. Gildistöku reglnanna.

Hafi atvinnu- eða rekstrarleyfishafi ítrekað eða með alvarlegum hætti brotið gegn hátternisreglum leigubifreiðastöðvar eða að öðru leyti sýnt af sér háttsemi sem er ósamrýmanleg leigubifreiðaþjónustu getur stöðin á þeim grunni hafnað því að veita honum afgreiðslu. Að öðrum kosti skal leyfishafa standa til boða afgreiðsla stöðvarinnar svo framarlega sem viðskiptalegir hagsmunir standa því ekki í vegi. Stöðin skal skrá ástæðu höfnunar.

Leigubifreiðastöð skal halda rafræna atvikaskrá um frávik er verða í starfsemi rekstrar- og atvinnuleyfishafa svo sem um brot gegn lögum og reglum. Undir frávik falla einnig kvartanir viðskiptavina og annarra viðsemjenda auk atriða sem fram koma í innra eftirliti stöðvarinnar. Færsla atvika skal hið minnsta sýna hvaða leyfishafa atvikið varðar, hvenær það varð, hvað fór úrskeiðis og ráðstafanir til úrbóta. Framkvæmd skal reglubundin greining á atvikum sem koma upp í akstri tengdum leigubifreiðastöðinni, hið minnsta ársfjórðungslega, og í kjölfarið leitast við að bæta úr þeim atriðum sem betur mega fara í starfsemi leigubifreiðastöðvarinnar. Óheimilt er að vinna persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim að tryggja öryggi og stuðla að neytendavernd og til að viðhafa megi eftirlit með því að starfsemi fari fram lögum samkvæmt.

Samgöngustofa hefur eftirlit með því að hátternisreglur leigubifreiðastöðva séu til samræmis við gerðar kröfur sem og að þeim sé fylgt af hálfu viðkomandi leigubifreiðastöðvar og tengdra leyfishafa. Fyrirmynd að hátternisreglum leigubifreiðastöðvar er birt í fylgiskjali með reglugerð þessari.

5. gr.

Í stað 2. málsl. 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Þar skal að minnsta kosti koma fram upphafsgjald, kílómetragjald og mínútugjald auk heildarverðs samkvæmt verðskrá fyrir 10 km ferð sem tekur 12 mínútur. Leturstærð skal að lágmarki vera 40 mm og letrið í greinilegum lit svo að auðveldlega megi aðskilja verðskrána frá öðrum merkingum leigubifreiðarinnar. Verðskrána skal þá ekki vera hægt að fjarlægja af leigubifreiðinni með auðveldum hætti.

6. gr.

Orðin „Rekstrarleyfishafi eða eftir atvikum“ í 1. málsl. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar falla brott.

7. gr.

Á eftir 8. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 8. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Rafræn skrá.

Leigubifreiðastöð skal halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir. Skráin skal byggja á gervihnattaupplýsingum og innihalda að minnsta kosti skráningu:

  1. upphafs- og endastöðvar ferðar,
  2. tímasetningu upphafs og enda ferðar,
  3. auðkenni ökutækis og leyfishafa,
  4. verðupplýsingar fyrir selda ferð.

Skráin skal vistuð í viðurkenndu og öruggu rafrænu kerfi sem fullnægir kröfum um gagnavernd, dulkóðun og aðgangsstýringu. Upplýsingar úr skránni skulu aðgengilegar eftirlitsaðilum í rauntíma í gegnum örugga vefgátt og varðveittar í 60 daga frá því að ferð var ekin. Aðgangur að skránni skal bundinn við eftirlitsaðila og hlutaðeigandi neytendur.

Leigubifreiðastöð skal tryggja að kerfið virki óslitið meðan á starfsemi stendur. Verði bilun í kerfinu skal tafarlaust gera viðeigandi ráðstafanir.

Berist Samgöngustofu kvörtun neytenda vegna leigubifreiðaþjónustu leiðbeinir stofnunin viðkomandi varðandi möguleika á öflun upplýsinga úr rafrænni skrá og um kæruleiðir.

8. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Rekstrarleyfishafi, sem rekur leigubifreiðastöð án starfsleyfis leigubifreiðastöðvar þar sem ein leigubifreið sem hann er skráður eigandi eða umráðamaður að hefur afgreiðslu skal á gildistíma leyfisins sinna skyldum og fullnægja gerðum kröfum til leigubifreiðastöðvar, eftir því sem þær eiga við.

9. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 5. gr., 7. mgr. 6. gr., 5. mgr. 7. gr., 5. mgr. 8. gr., 5. mgr. 9. gr., 3. mgr. 11. gr., 9. mgr. 12. gr., 4. mgr. 16. gr. og 23. gr. laga um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, og b-lið 3. mgr. 72. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, öðlast þegar gildi. Þó skal a-liður 1. mgr. 1. gr. ekki öðlast gildi fyrr en 1. apríl 2027.

Innviðaráðuneytinu, 21. september 2026.

Eyjólfur Ármannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 22. september 2026

Tengd mál