Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Vesturbyggð

Málaflokkur

Kosningar

Undirritunardagur

22. mars 2024

Útgáfudagur

22. mars 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 370/2024

22. mars 2024

REGLUR

um heimastjórnarkosningar í Sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um kosningar um nefnd fyrir hluta sveitarfélagsins, þ.e. heimastjórnir, sbr. 38. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011 (hér eftir sveitarstjórnarlög), 36. gr. samþykktar um stjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar og reglugerð nr. 922/2023 um íbúakosningar sveitarfélaga (hér eftir reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga).

Heimastjórnarkosningar skulu fara fram á fjögurra (4) ára fresti, á sama tíma og kosningar til sveitarstjórnar.

Að því leyti sem ekki er getið um það í reglum þessum gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga og reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga.

2. gr. Heimastjórnir.

Heimastjórnir eru nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins sem fara með afmörkuð málefni og málaflokka, sbr. 38. gr. sveitarstjórnarlaga. Heimastjórnir eru eftirfarandi:

  1. Heimastjórn Arnarfjarðar
  2. Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps
  3. Heimastjórn Patreksfjarðar
  4. Heimastjórn Tálknafjarðar

Valdmörk heimastjórna miðast við sveitarfélagsmörk Patrekshrepps, Bíldudalshrepps, Barðastrandahrepps og Rauðasandshrepps þann 10. júní 1994 og Tálknafjarðarhrepps þann 18. maí 2024.

Nánar er fjallað um heimastjórnir í 36. og 48. gr. samþykkta um stjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

3. gr. Kosningarréttur.

Til kosninga til heimastjórna, sbr. 38. gr. sveitarstjórnarlaga, eiga þau kosningarrétt sem skráð eru í þeim hluta sveitarfélagsins sem atkvæðagreiðslan nær til skv. 2. gr. reglna þessara.

Kosningaraldur er 16 ára en kjósandi skal hafa náð þeim aldri, sem kosningarréttur miðar við, á lokadegi atkvæðagreiðslu, standi atkvæðagreiðsla yfir tiltekið tímabil.

4. gr. Kjörskrá.

Enginn getur neytt kosningarréttar nema nafn hans sé á kjörskrá þegar kosning fer fram. Gera skal sérstakar kjörskrár sem miðast við staðarmörk hverrar heimastjórnar, sbr. 2. gr. reglna þessara. Að öðru leyti gilda ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga.

5. gr. Kjörstaðir og kjördeildir.

Sveitarfélaginu er skipt upp í eftirfarandi kjördeildir vegna heimastjórnarkosninga og er kjósanda einungis heimilt að kjósa í sinni kjördeild:

  1. Kjördeild Arnarfjarðar og yfir þeirri kjördeild er undirkjörstjórn Bíldudals.
  2. Kjördeild fyrir fyrrum Barðastrandarhrepp og Rauðasandshrepp sem skiptist í kjördeild I og II. Kjördeild I er fyrrum Barðastrandahreppur og undirkjörstjórn Barðastrandarhrepps sér um þá kjördeild en kjördeild II er fyrrum Rauðasandshreppur og undirkjörstjórn Patreksfjarðar sér um þá kjördeild.
  3. Kjördeild Patreksfjarðar og yfir þeirri kjördeild er undirkjörstjórn Patreksfjarðar.
  4. Kjördeild Tálknafjarðar og yfir þeirri kjördeild er undirkjörstjórn Tálknafjarðar.

Heimilt er að flytja kjördeild frá einum kjörstað til annars í ákveðinn tíma, en óheimilt er að hafa sömu kjördeild opna á tveimur (2) stöðum samtímis.

Að öðru leyti gildir 8. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga.

6. gr. Kjörgögn.

Um kjörgögn gildir 6. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga. Gæta skal þess að litur kjörseðils til heimastjórnarkosninga sé ekki sá sami og til sveitarstjórnarkosninga.

7. gr. Tímabil atkvæðagreiðslu.

Heimilt er að hefja atkvæðagreiðslu til heimastjórnarkosninga í fyrsta lagi 20 dögum eftir að til hennar er boðað. Atkvæðagreiðsla telst hafin þegar opnað er fyrir atkvæðagreiðslu á kjörstað.

Hægt er að kjósa til heimastjórna á skrifstofum sveitarfélagsins eða á öðrum stöðum sem yfirkjörstjórn ákveður. Tímabilið getur verið tveimur (2) til fjórum (4) vikum fyrir kjördag og þarf að auglýsa í samræmi við reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga.

Lokakjördagur skal vera sá sami og kjördagur til sveitarstjórnarkosninga. Á þeim degi skal kjörstaður vera sá sami og til sveitarstjórnarkosninga.

8. gr. Framkvæmd atkvæðagreiðslu.

Heimastjórnir skulu skipaðar þremur (3) fulltrúum. Tveir (2) fulltrúar og tveir (2) til vara skulu kosnir beinni kosningu. Kjörgengir eru þeir í heimastjórn sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu skv. 2. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga. Til þess að vera kjörgengur í tiltekna heimastjórn þarf viðkomandi að vera með lögheimili innan valdmarka þeirrar heimastjórnar, sbr. 2. gr. reglna þessara.

Einn fulltrúi og annar til vara eru kjörnir af sveitarstjórn og skulu þeir vera aðalfulltrúar í sveitarstjórn. Kjör þeirra skal fara fram á sama fundi og sveitarstjórn kýs fulltrúa í fastanefndir og ráð skv. 48. gr. samþykktar um stjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Sveitarstjórn kýs formann úr hópi aðalmanna í heimastjórn á þeim sama fundi.

Framkvæmd heimastjórnarkosninga skal vera þannig að hver kjósandi kýs einn (1) aðalmann í heimastjórn í beinni kosningu. Kjósandi skrifar á kjörseðil fullt nafn og heimilisfang þess sem hann kýs. Þeir tveir (2) einstaklingar sem fá flest atkvæði eru kjörnir aðalmenn. Næstu tveir (2) þar á eftir eru kjörnir varamenn í samræmi við fjölda atkvæða. Fái fulltrúar jafnmörg atkvæði skal hlutkesti ráða. Taki einhver ekki kjöri, láti af störfum eða missi kjörgengi skal það tilkynnt til sveitarstjórnar. Sveitarstjórn skal tilkynna þann sem kemur í staðinn á sveitarstjórnarfundi. Ganga skal á röð einstaklinga sem fengu kosningu til heimastjórnar eftir atkvæðamagni.

Kjörstjórn skal halda lista yfir alla sem fá atkvæði í kosningunni.

Komi til þess að heimastjórn verði ekki fullmönnuð, hvorki af aðal- eða varamönnum, skal sveitarstjórn kjósa fulltrúa í heimastjórn á eftir þeim einstaklingum sem hlotið hafa kosningu. Þetta getur t.d. átt við ef færri en fjórir (4) einstaklingar fá atkvæði við kosningar eða ef fulltrúar missa kjörgengi síðar á kjörtímabili og varamenn eru ekki tiltækir.

Á kjörstöðum skulu vera sérstakir atkvæðakassar vegna heimastjórnarkosninga.

Atkvæðatalning skal fara fram á vegum yfirkjörstjórnar og skal talning fara fram í samræmi við 12. og 13. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga. Úrslit kosninga skulu kynnt opinberlega þegar þau liggja fyrir, þ. á m. á vefsíðu sveitarfélagsins. Yfirkjörstjórn skal tilkynna aðalmönnum og varamönnum um kosningu þeirra.

Ákvæði 44. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins um áheyrnarfulltrúa á ekki við þar sem meirihluti fulltrúa í heimastjórn er kjörinn af íbúum viðkomandi hluta sveitarfélagsins.

9. gr. Framkvæmdaaðili kosninga.

Yfirkjörstjórn annast undirbúning kosninga til heimastjórna, s.s. varðandi gerð kjörgagna og annað skipulag, sbr. 5. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga. Yfirkjörstjórn skal skila sérstökum skýrslum til sveitarstjórnar vegna framkvæmdar kosninga í heimastjórnir, sbr. 4. mgr. 5. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga.

10.gr.

Aðstoðarmenn kjósenda.

Um aðstoðarmenn kjósenda skulu gilda ákvæði reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga.

11. gr. Atkvæðagreiðsla með pósti.

Heimilt er að greiða atkvæði með pósti og fer um slíka atkvæðagreiðslu skv. 10. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga.

12. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 7. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga og reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga, öðlast þegar gildi.

Samþykkt af undirbúningsstjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar, 4. mars 2024, í bæjarstjórn Vesturbyggðar 20. mars 2024 og af sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps 21. mars 2024.

F.h. Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar, 22. mars 2024.

Jón Árnason,

formaður undirbúningsstjórnar Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

B deild - Útgáfud.: 22. mars 2024

Tengd mál