Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

24. júlí 2026

Útgáfudagur

10. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 884/2026

24. júlí 2026

REGLUR

um upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að birta upplýsingar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Upplýsingaskylda fjármálafyrirtækja.

Fjármálafyrirtæki skal birta upplýsingar samkvæmt áttunda hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. 18. gr. laga um fjármálafyrirtæki, með þeim hætti og þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2024/3172, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3172 frá 29. nóvember um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi birtingu upplýsinga sem um getur í II. og III. bálki áttunda hluta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 og sem fellir úr gildi framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/637, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2025 frá 13. júní 2025 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61 frá 2. október 2025, bls. 33.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/722 frá 26. mars 2026 um breytingar á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem settir eru fram í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2024/3172 að því er varðar innleiðingu og notkun sameiginlegs aðgangsstaðar EBA fyrir upplýsingar og birtingar fjármálastofnana öðrum en smáum og óflóknum stofnunum, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 210/2026 frá 10. júlí 2026.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3172 og 2026/722 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A32024R3172&qid=1748952346297, birt í OJ deild L þann 31. desember 2024,
  2. https://eur-lex.europa.eu/eli/reg_impl/2026/722/oj/eng, birt í OJ deild L þann 27. mars 2026.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 99. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur um upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja, nr. 1554/2025.

Ákvæði til bráðabirgða.

Í samræmi við 1. gr. framkvæmdarreglugerðar (ESB) 2026/722 gildir ákvæði 15. gr. og viðaukar XXIX og XXX framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/637 frá 15. mars 2021 um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi birtingu upplýsinga sem um getur í II. og III. bálki áttunda hluta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1423/2013, framseldri reglugerð (ESB) 2015/1555, framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/200 og framseldri reglugerð (ESB) 2017/2295 til 31. desember 2026 að því er varðar 16. gr. framkvæmdarreglugerðar (ESB) 2024/3172.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/637 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R0637, birt í OJ deild L, nr. 136, þann 21. apríl 2021, bls. 1-327.

Seðlabanka Íslands, 24. júlí 2026.

Björk Sigurgísladóttir

varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.

Linda Kolbrún Björgvinsdóttir

framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 10. ágúst 2026

Tengd mál